Fyrirspurn
Heim
Leita
Stærsta Leturgerð
Miðstærð Leturs
Minnsta Leturgerð

Ljóð unga fólksins 2013

Ásdís Lilija Arnardóttir Hvanneyri.

Nemandi í 5. bekk.

 

Bækur.

 

Textinn streymir áfram

og fellur eins og foss

á blaðsíðum eru myndir

af tröllum og köllum

 

Bækur geta verið

stuttar, líka langar.

 

Bókin kennir

bókin svæfir

og bókin nennir

að bíða eftir mér.

 

 

 

 

 

Edda Heiðrún Backman og

Þórarinn Eldjárn

Úr bókinni vaknaðu, Sölvi

 

Vaknaðu, Sölvi

segir Týra.

Hún vill ráða,

hún vill stýra.

 

Hvað er nú þetta?

hugsar ketta.

Hvað er hann sífelt að sulla og sletta.

 

Látum okkur sjá

nú líst mér betur á:

Nýjan feitan fisk

fæ ég kannski á disk.

 

Stöngin er flott

og fata undir aflann.

Aldeilis gott,

ég ætla að éta

og japla´allan staflann.

 

Hvað er að sjá?

Hvað er atarna?

Þykist hann fá

fiskinn þarna?

 

Komnir allir

kettir í götunni.

En einginn fiskur

úr fötunni.

 

Ég held bara, Sölvi

ég sveimérþá bölvi.

Ég gefst upp-  á vandræðagepli

sem japlar á epli.

Hið sanna kom í ljós:

Sardína úr dós.

 

 

Ljóðin eru samin við myndir eftir Eddu Heiðrúnu Backman. Til styrktar hollvinum Grensársdeildar.

 

 

 

Þorsteinn frá Hamri

Ljóðabókin

Allt kom það nær .

 

 

Árstíðirnar nem ég

í andvara, gróðri

 

en veit þess dæmi

að vorið hafi sprungið út

gegnum síma...

 

Og inn til mín

um opinn glugga á jarðhæð

hafa glettur

sáldrað sömu boðum:

 

Litríkum deplum

sem lýstu upp gráma hugans,

bræddu úr brjósti Þelann

 

á miðjum

hinum mannskæða þorra.

 

 

Piet Hein í þýðingu

Helga Hálfdánarssonar.

 

Staka.

 

Spyrji þitt hjarta

vorið til vegar,

verðurðu skáld,

ef þú ert það þegar.

 

Heimspeki.

 

Um tilgang lífsins

lífið sér

jafn lengi og einskis

spyrjum vér.

 

Úr sjóði minninganna.

 

Sú alfyrsta minning

sem mér hefur geymst

er eitt sem ég mundi

að mér hafði gleymst.

 

 

Gleðileg jól. 

Kveiki lítinn Kertaloga

jólavísa eftir

Kristínu Jónsdóttur

bónda á Hlíð í Lóni.

 

Kveiki lítinn kertaloga.

Kyrrð og friður ríki í nótt.

Upp á himins bláum boga

blikar jólastjarnan hljótt.

 

Ljúfust ykkur lýsi sól.

Lengist óðum dagur.

Egið gleði og gæfu um jól.

Græðist ykkar hagur.

 

 

Gyrðir Elíasson hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár fyrir bóklina

Milli trjánna.

Hér birtast þrjú ljóða hans

 

Haustdagur í skógi

úr bókinni  Tvífundnaland 

 

Litli fuglinn

sem ég sé flögra

milli neðstu greina

aspartrjánna

reyndist vera

músarindill

 

Það brestur

í kvistum

á stígnum

 

við erum þarna

tveir skrítnir fuglar

 

 

 

Úr bókinni Indíánasumar

 

Stúlkubarn á fyrsta ári


Að sitja á eldhúsgólfi,
borða rúsínur af undir-
skál og mæna upp í
rafmagnsljósið sem
er sól þessa dags
Það er lífið!
seinna
breytist
ljósið 


 

 

Herdísarvík 1

 

Svarta fjallið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

Svarta húsið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

En sjórinn

er aldrei

í sama lit

 

 

 

  

 

 

Að hugsa sér

 

Ljóð Lennon

Þýðing Þórarinn Eldjárn

 

Að hugsa himnaríki

og helvíti ekki til

aðeins jörð og himinn

það er auðvelt ef ég

vil

Að hugsa að allir lifðu

og hrærðust hér og

nú.

 

Hugsaðu þér hvergi

nein landamæri lögð

að drepa og deyja

fyrir

né deilt um trúarbrögð

já hugsaðu þér

heiminn

halda grið og frið.

 

Mér er sagt ég sé með óra

en ég er ekki einn um það.

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að griðarstað.

 

Að hugsa sér ef engar

eignir væru til,

græðgi og hungur horfin,

hvergi ranglátt spil.

Að hugsa sér öll gæði heimsins og jarðar deilast

jafnt.

 

Mér er sagt ég sé

með óra

en ég er ekki einn um það

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að einum stað.

 

 

 

 

Mynd

 

Að vakna og

sjá sólina

leika í trjánum

þröst sitja

á grein við gluggann

er ljóð um vorið

 

Snjólaug Guðmundsdóttir

 

 

Jafnvægi

 

Hér er allt eins og á að vera

Ey þar og nes hér

Og vík milli vina

Þrestir í görðum

Sendlingar í fjörum

Æðarfugl í eynni

Allir þurfa að komast af

Og hafa skipt milli sín gæðunum

Sem við menn kunnum ekki lengur

 

Finnur Torfi Hjörleifsson

 

 

28. febrúar 2012 09:38

Úthlutanir Menningarráðs Vesturlands 2012

Í Tónbergi tónlistarskóla Tónlistarskóla Akraness 

Föstudaginn 24. febrúar 2012 úthlutaði Menningarráð Vesturlands styrkjum til þeirra er hæstu styrki hlutu árið 2012. Þetta er í sjöunda sinn sem úthlutað er úr sjóðnum en alls hefur verið úthlutað um 200 miljónum króna.

Í ár fór athöfnin fram í Tónbergi sal Tónlistarskóla Akranesbæjar en úthlutað var 27.6 miljónum króna til alls 85 verkefna. Umsóknir í ár voru samtals 151 talsins og að upphæð 108 miljónir króna. Áhuginn er mikill og menningin blómstrar á Vesturlandi. Í ár eins og undanfarin ár setur tónlistin mikinn svip á menningarlíf Vesturlands og má sjá í umsóknum til menningarráðs að tónlistarskólarnir eru að skila okkur mjög miklum menningarverðmætum. Leiklist og aðrar sviðslistir eru einnig mjög öflugar en í ár var það menningartengd ferðaþjónusta sem var með flestar umsóknir. Fjórir hæstu styrkir í ár eina miljón króna hlutu Northen Wave kvikmyndahátíð í Grundarfirði, Snorrastofa í Reykholti, Reykholtshátíðin og Markaðsstofa Vesturlands. Listi yfir styrkhafa er undir styrkveitingar á heimasíðunni.

Rarik verður bakhjarl menningarstarfs á vesturlandi tvö næstu árin 2012 0g 2013 með einni miljón króna styrk bæði árin. Menningarráð Vesturlands er afar þakklát fyrir þessa viðbót sem gerir menningarráði kleift að styrkja umbjóðendur menningarráðs enn betur. Ákveðið var að styrkurinn renni til Markaðsstofu Vesturlands. Gert verður myndband með áherslu á staði á Vesturlandi sem tengjast menningu og menningararfleifð. Myndbandið mun nýtast almennri kynningu gagnvart íslenskum ferðamönnum sem og erlendum. Söfnum og sýningum á Vesturlandi verða gerð góð skil en einnig verður hægt að draga fram samstarfsverkefni ferðaþjónustunnar og menningarviðburða innan landshlutans. Menningarráð telur að með þessu gagnist styrkurinn mjög mörgum. En Markaðsstofa heldur m.a. út viðburðarskráningu um menningarviðburði á Vesturlandi. Myndbandið verður hægt að fá í styttri útgáfu sem mun ef til vill henta mörgum betur.

Í Stykkishólmspóstinum í dag er auglýsing sem varðar nýja styrki sem menningarráð úthlutar til stofn og rekstrarstyrkja menningarstofnana. Þetta eru styrkir sem fjárveitingarnefnd Alþingis úthlutaði áður. Vesturland fær rúmar 10.miljónir í ár frá menntamála- og menningarráðuneytinu til þess að úthluta til þessara verkefna. Vonast er til þess að þessi sjóður eflist því mikil þörf er á honum.

Allir geta því látið sig hlakka til þess að fá að njóta fjölbreyttrar menningar á árinu 2012 um allt Vesturland.

 

 

 

 

 


Til baka



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta

Menningarráð Vesturlands | Bjarnarbraut 8 | menning@vesturland.is | 433 2313 og 892 5290