Fyrirspurn
Heim
Leita
Stærsta Leturgerð
Miðstærð Leturs
Minnsta Leturgerð

Edda Heiðrún Backman og

Þórarinn Eldjárn

Úr bókinni vaknaðu, Sölvi

 

Vaknaðu, Sölvi

segir Týra.

Hún vill ráða,

hún vill stýra.

 

Hvað er nú þetta?

hugsar ketta.

Hvað er hann sífelt að sulla og sletta.

 

Látum okkur sjá

nú líst mér betur á:

Nýjan feitan fisk

fæ ég kannski á disk.

 

Stöngin er flott

og fata undir aflann.

Aldeilis gott,

ég ætla að éta

og japla´allan staflann.

 

Hvað er að sjá?

Hvað er atarna?

Þykist hann fá

fiskinn þarna?

 

Komnir allir

kettir í götunni.

En einginn fiskur

úr fötunni.

 

Ég held bara, Sölvi

ég sveimérþá bölvi.

Ég gefst upp-  á vandræðagepli

sem japlar á epli.

Hið sanna kom í ljós:

Sardína úr dós.

 

 

Ljóðin eru samin við myndir eftir Eddu Heiðrúnu Backman. Til styrktar hollvinum Grensársdeildar.

 

 

 

Þorsteinn frá Hamri

Ljóðabókin

Allt kom það nær .

 

 

Árstíðirnar nem ég

í andvara, gróðri

 

en veit þess dæmi

að vorið hafi sprungið út

gegnum síma...

 

Og inn til mín

um opinn glugga á jarðhæð

hafa glettur

sáldrað sömu boðum:

 

Litríkum deplum

sem lýstu upp gráma hugans,

bræddu úr brjósti Þelann

 

á miðjum

hinum mannskæða þorra.

 

 

Piet Hein í þýðingu

Helga Hálfdánarssonar.

 

Staka.

 

Spyrji þitt hjarta

vorið til vegar,

verðurðu skáld,

ef þú ert það þegar.

 

Heimspeki.

 

Um tilgang lífsins

lífið sér

jafn lengi og einskis

spyrjum vér.

 

Úr sjóði minninganna.

 

Sú alfyrsta minning

sem mér hefur geymst

er eitt sem ég mundi

að mér hafði gleymst.

 

 

Gleðileg jól. 

Kveiki lítinn Kertaloga

jólavísa eftir

Kristínu Jónsdóttur

bónda á Hlíð í Lóni.

 

Kveiki lítinn kertaloga.

Kyrrð og friður ríki í nótt.

Upp á himins bláum boga

blikar jólastjarnan hljótt.

 

Ljúfust ykkur lýsi sól.

Lengist óðum dagur.

Egið gleði og gæfu um jól.

Græðist ykkar hagur.

 

 

Gyrðir Elíasson hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár fyrir bóklina

Milli trjánna.

Hér birtast þrjú ljóða hans

 

Haustdagur í skógi

úr bókinni  Tvífundnaland 

 

Litli fuglinn

sem ég sé flögra

milli neðstu greina

aspartrjánna

reyndist vera

músarindill

 

Það brestur

í kvistum

á stígnum

 

við erum þarna

tveir skrítnir fuglar

 

 

 

Úr bókinni Indíánasumar

 

Stúlkubarn á fyrsta ári


Að sitja á eldhúsgólfi,
borða rúsínur af undir-
skál og mæna upp í
rafmagnsljósið sem
er sól þessa dags
Það er lífið!
seinna
breytist
ljósið 


 

 

Herdísarvík 1

 

Svarta fjallið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

Svarta húsið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

En sjórinn

er aldrei

í sama lit

 

 

 

  

 

 

Að hugsa sér

 

Ljóð Lennon

Þýðing Þórarinn Eldjárn

 

Að hugsa himnaríki

og helvíti ekki til

aðeins jörð og himinn

það er auðvelt ef ég

vil

Að hugsa að allir lifðu

og hrærðust hér og

nú.

 

Hugsaðu þér hvergi

nein landamæri lögð

að drepa og deyja

fyrir

né deilt um trúarbrögð

já hugsaðu þér

heiminn

halda grið og frið.

 

Mér er sagt ég sé með óra

en ég er ekki einn um það.

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að griðarstað.

 

Að hugsa sér ef engar

eignir væru til,

græðgi og hungur horfin,

hvergi ranglátt spil.

Að hugsa sér öll gæði heimsins og jarðar deilast

jafnt.

 

Mér er sagt ég sé

með óra

en ég er ekki einn um það

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að einum stað.

 

 

 

 

Mynd

 

Að vakna og

sjá sólina

leika í trjánum

þröst sitja

á grein við gluggann

er ljóð um vorið

 

Snjólaug Guðmundsdóttir

 

 

Jafnvægi

 

Hér er allt eins og á að vera

Ey þar og nes hér

Og vík milli vina

Þrestir í görðum

Sendlingar í fjörum

Æðarfugl í eynni

Allir þurfa að komast af

Og hafa skipt milli sín gæðunum

Sem við menn kunnum ekki lengur

 

Finnur Torfi Hjörleifsson

 

 

7. maí 2012 09:41

Styrkir til stofn- og rekstrar fyrirtækja

Styrkjum hefur verið úthlutað og mun listi birtast á vefnum á

 þriðjudag 8. maí.

 

 

Úthlutun styrkja sem áður var úthlutað af fjárlaganefnd Alþingis.

 

 

Menningarráð Vesturlands hefur úthlutað styrkjum til stofn- og rekstrar fyrirtækja sem stuðla að faglegri uppbyggingu á sviði menningarmála á Vesturlandi.

Úthlutunin er í samræmi við breytt fyrirkomulag úthlutunnar styrkja til stofn- og rekstrar menningarfyrirtækja. Alþingi hefur hætt úthlutun á styrkjum til ýmissa verkefna eins og verið hefur. Alþingi ákvarðar áfram umfang fjárframlaga en úthlutun er í höndum mismunandi ráðuneyta eftir málefnasviðum þeirra.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá mennta- og menningarráðuneytinu er í úthlutun ráðuneytisins lögð áhersla á verkefni á sviði listgreina, menningararfs, íþrótta- og æskulýðsmála og uppbyggingar landsmótsstaða. Mennta- og menningarráðuneyti tók til meðferðar 340 umsóknir þar sem sótt var um styrki að fjárhæð 1.334.960kr. Til ráðstöfunar voru 123,4 m.kr. á fjárlögum 2012 og hlutu 68 aðilar styrk. Fjölmörgum umsækjendum var einnig beint á að sækja til lögbundinna sjóða á sviði menningarmála eða til menningarráða landshlutasamtaka, enda runnu fjárframlög þau sem Alþingi úthlutaði áður til menningarmála að hluta til þessara aðila.

Til Menningarráðs Vesturlands runnu alls 10,2 m. kr. til stofn- og rekstrarstyrkja, sem er aðeins lítill hluti af því sem áður var úthlutað til þessa málaflokks á Alþingi. Það er erfitt verkefni velja milli margra góðra umsókna við slíkt árferði.

Alls tók Menningarráð Vesturlands til meðferðar 42 umsóknir. Sótt var um 144.546.786 kr.

Úthlutað var til 12 verkefna alls 9,5 m.kr. Eins og áður hefur komið fram var mikil óánægja með þá upphæð sem Menningarráði Vesturlands var veitt til þessa verkefnis, og unnu landshlutasamtökin ötullega að því að fá því breytt en án árangurs.

Ekki mun vera lagt í kostnað vegna opinberrar úthlutunnar að þessu sinni. Þeim sem hlutu styrki er óskað til hamingju og óskir fylgja um velgengni til allra.

Nöfn þeirra sem styrki hljóta munu birtast á heimasíðu Menningarrás Vesturlands, www.menningarviti.is í lok vikunnar. En öllum umsækjendum verður sent bréf á sama tíma.

 

 

 

 


Til baka



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta

Menningarráð Vesturlands | Bjarnarbraut 8 | menning@vesturland.is | 433 2313 og 892 5290