Fyrirspurn
Heim
Leita
Stærsta Leturgerð
Miðstærð Leturs
Minnsta Leturgerð

Edda Heiðrún Backman og

Þórarinn Eldjárn

Úr bókinni vaknaðu, Sölvi

 

Vaknaðu, Sölvi

segir Týra.

Hún vill ráða,

hún vill stýra.

 

Hvað er nú þetta?

hugsar ketta.

Hvað er hann sífelt að sulla og sletta.

 

Látum okkur sjá

nú líst mér betur á:

Nýjan feitan fisk

fæ ég kannski á disk.

 

Stöngin er flott

og fata undir aflann.

Aldeilis gott,

ég ætla að éta

og japla´allan staflann.

 

Hvað er að sjá?

Hvað er atarna?

Þykist hann fá

fiskinn þarna?

 

Komnir allir

kettir í götunni.

En einginn fiskur

úr fötunni.

 

Ég held bara, Sölvi

ég sveimérþá bölvi.

Ég gefst upp-  á vandræðagepli

sem japlar á epli.

Hið sanna kom í ljós:

Sardína úr dós.

 

 

Ljóðin eru samin við myndir eftir Eddu Heiðrúnu Backman. Til styrktar hollvinum Grensársdeildar.

 

 

 

Þorsteinn frá Hamri

Ljóðabókin

Allt kom það nær .

 

 

Árstíðirnar nem ég

í andvara, gróðri

 

en veit þess dæmi

að vorið hafi sprungið út

gegnum síma...

 

Og inn til mín

um opinn glugga á jarðhæð

hafa glettur

sáldrað sömu boðum:

 

Litríkum deplum

sem lýstu upp gráma hugans,

bræddu úr brjósti Þelann

 

á miðjum

hinum mannskæða þorra.

 

 

Piet Hein í þýðingu

Helga Hálfdánarssonar.

 

Staka.

 

Spyrji þitt hjarta

vorið til vegar,

verðurðu skáld,

ef þú ert það þegar.

 

Heimspeki.

 

Um tilgang lífsins

lífið sér

jafn lengi og einskis

spyrjum vér.

 

Úr sjóði minninganna.

 

Sú alfyrsta minning

sem mér hefur geymst

er eitt sem ég mundi

að mér hafði gleymst.

 

 

Gleðileg jól. 

Kveiki lítinn Kertaloga

jólavísa eftir

Kristínu Jónsdóttur

bónda á Hlíð í Lóni.

 

Kveiki lítinn kertaloga.

Kyrrð og friður ríki í nótt.

Upp á himins bláum boga

blikar jólastjarnan hljótt.

 

Ljúfust ykkur lýsi sól.

Lengist óðum dagur.

Egið gleði og gæfu um jól.

Græðist ykkar hagur.

 

 

Gyrðir Elíasson hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár fyrir bóklina

Milli trjánna.

Hér birtast þrjú ljóða hans

 

Haustdagur í skógi

úr bókinni  Tvífundnaland 

 

Litli fuglinn

sem ég sé flögra

milli neðstu greina

aspartrjánna

reyndist vera

músarindill

 

Það brestur

í kvistum

á stígnum

 

við erum þarna

tveir skrítnir fuglar

 

 

 

Úr bókinni Indíánasumar

 

Stúlkubarn á fyrsta ári


Að sitja á eldhúsgólfi,
borða rúsínur af undir-
skál og mæna upp í
rafmagnsljósið sem
er sól þessa dags
Það er lífið!
seinna
breytist
ljósið 


 

 

Herdísarvík 1

 

Svarta fjallið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

Svarta húsið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

En sjórinn

er aldrei

í sama lit

 

 

 

  

 

 

Að hugsa sér

 

Ljóð Lennon

Þýðing Þórarinn Eldjárn

 

Að hugsa himnaríki

og helvíti ekki til

aðeins jörð og himinn

það er auðvelt ef ég

vil

Að hugsa að allir lifðu

og hrærðust hér og

nú.

 

Hugsaðu þér hvergi

nein landamæri lögð

að drepa og deyja

fyrir

né deilt um trúarbrögð

já hugsaðu þér

heiminn

halda grið og frið.

 

Mér er sagt ég sé með óra

en ég er ekki einn um það.

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að griðarstað.

 

Að hugsa sér ef engar

eignir væru til,

græðgi og hungur horfin,

hvergi ranglátt spil.

Að hugsa sér öll gæði heimsins og jarðar deilast

jafnt.

 

Mér er sagt ég sé

með óra

en ég er ekki einn um það

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að einum stað.

 

 

 

 

Mynd

 

Að vakna og

sjá sólina

leika í trjánum

þröst sitja

á grein við gluggann

er ljóð um vorið

 

Snjólaug Guðmundsdóttir

 

 

Jafnvægi

 

Hér er allt eins og á að vera

Ey þar og nes hér

Og vík milli vina

Þrestir í görðum

Sendlingar í fjörum

Æðarfugl í eynni

Allir þurfa að komast af

Og hafa skipt milli sín gæðunum

Sem við menn kunnum ekki lengur

 

Finnur Torfi Hjörleifsson

 

 

Menningarráð Vesturlands | Bjarnarbraut 8 | menning@vesturland.is | 433 2313 og 892 5290