Nokkur ljóð frá nemendum í grunnskóla Borgarbyggðar á Hvanneyri. Flóki Kristinsson kenndi þeim og þessi ljóð voru send í samkeppni um ljóð ungafólksins og vegnaði mjög vel.
Mamma mín
Mamma
svo hlý
svo góð, hjartnæm og blíð.
Ég man
þegar hún knúsaði mig,
mér leið eins og að liggja
í heitri sólinni
og finna hana
verma mig.
Elín Ósk Arnardóttir, 5. bekk
Sóltúni 18a Hvanneyri, 311 Borgarnes
-------
Veran, veran
Ég hitti í morgun
voða skrítna veru
með víraflækjuhár
og græna peru,
bláa tungu,
pínulitlar fingur og tær
sem minntu á rjómapönnukökur.
Ljóð
Tölvan átti mömmu
og mamma átti tölvu.
Lífið er stutt þótt
tíminn sé langur.
Snæbjörn Helgi Arnarson Jack, 4. bekk
Skólaflöt 12 Hvanneyri, 311 Borgarnes
-------
Litli frændi minn
Lítil hendi hreyfist um
kreppir saman lófa
eins og væri að þreifa
til mömmu sinnar
eftir hlýju brjósti
með volgri mjólk.
Hugrún Björt Hermannsdóttir, 5. bekk
Túngötu 25 Hvanneyri, 311 Borgarnes
-------
Sleikjupinni
Augu bróður míns
sjá allt í sleikjupinnum
því hann sleikir mig svo oft.
Augu hans eru blá
eins og sleikjupinni.
Pétur Freyr Sigurjónsson, 5. bekk
Hvanneyrargötu 14, 311 Borgarnes
-------
Bróðir
Hann er ungur
aðeins 6 ára.
Getur verið klókur,
getur verið heimskur,
þykir mér samt vænt um hann.
Án hans ætti hann ekkert líf
með mér.
Ég
Ég er barn klettanna,
jafn viðkvæm og snjórinn
sem kremst undir fótunum á okkur,
eik, sem hefur lengi barist
á móti stormi
og jafn glöð og fuglar að sumri
en líka jafn döpur og skýin,
að hanga alltaf yfir okkur og sjá alltaf það sama.
Ég get verið jafn reið og náttúran
þegar hún er skemmd
og finn fyrir miklum sársauka
eins og Ísland þegar það er skemmt.
Hvað er að vera ég?
Það að vera ég
er til dæmis svona:
Ég er venjuleg stelpa
augun himinblá.
Ég er eins og lítil lirfa
sem skríður á milli trjánna
og breytist síðan í fallegt fiðrildi.
Ég er eins og ballerína.
Ég er eins og sippuband.
Ég er eins og lítil sæt mús
sem stekkur síðan upp
og er svo grimm að allir verða hræddir.
Guðríður Jana Arnardóttir, 5. bekk
Skólaflöt 14 Hvanneyr, 311 Borgarnes
-------
Móðir mín
Augu hennar stara á mig,
munnurinn segir eitthvað,
orðin hoppa eitt og eitt út um varirnar fagrar,
andlitið svo slétt og fallegt,
það glansar í sólarljósinu.
Hún er ljúf
ljúf sem lamb.
Vor
Ég finn hitann,
fer út
ég finn blæinn
finn blómin opnast í huga mínum,
sólin er björt.
Ég er glöð.
Ég sé að allt í kringum mig
eru tré að laufgast
ég leggst í grænt grasið
loka augunum
og finn að það er komið vor.
Erla Ösp Hafþórsdóttir, 5. bekk
Skólaflöt 4 Hvanneyri, 311 Borgarnes
-------
Auga
Auga getur verið
með alls kyns liti
eins og blátt, rautt,
grátt og brúnt.
Augu á bróður mínum eru blá.
Fóturinn
Fóturinn er bólginn.
Fóturinn var laminn og marinn.
Fóturinn hleypur og hleypur
og brotnar.
Hvað er að vera ég?
Að vera ég
er að vera alkahólisti
með ljósblátt bindi
hallærislegt
og að vera ég
er að vera laminn
hingað og þangað
og að vera ég er að vera
aðdáandi Rammstein.
Stefán Snær Friðriksson, 4. bekk
Túngötu 19 Hvanneyri, 311 Borgarnes
-------
Háir og smáir
Sumir eru smáir
aðrir eru háir.
En sumir smáir
stækka mjög oft
og verða háir.
Hönd
Hönd á mér
er alltaf að vinna
eins og tölva
sem hugsar.
Vor
Brumin springa
grasið grænkar
fuglinn kemur
dýrin bera
búinn að bíða í allan vetur
og það rættist
ég gleðst
eins og blóm
sem laufgast.
Ég
Sjálfur er ég ungur
og hlusta eftir nóttinni
koma og fara.
Mér líður eins.
Benedikt Októ Bjarnason, 5. bekk
Túngötu 22 Hvanneyri, 311 Borgarnes
-------
Hár
Kona ein,
- mamma mín,
svo sæt og fín
með hárið mjúkt.
Ég er alltaf að strjúka þann koll.
Mér finnst eins og ég
sé að strjúka jörðina.
Hár hennar var svart,
hún dó síðar.
Ég fékk aldrei að strjúka
eða sjá þann haus.
Assa Ágústsdóttir, 4. bekk
Gamla sksth Hvanneyri, 311 Borgarnes
-------
Auga
Auga þrútið og marið.
Marið heilan hring.
Augað fór í skólann,
kom heim alblóðugt.
Eigandi augans lenti í áflogum
í skólanum.
Og svo veit ég ekki meir
nema augað er
þreytt
og þráir svefn.
Sigrún Rós Helgadóttir, 4. bekk
Mið-Fossum, 311 Borgarnes
-------
Nefið
Nefið er svo skrýtið,
stundum stórt
eða lítið.
Nefið er bogið
en finnur ennþá lykt
af angan sumarblómanna,
þótt vetur sé genginn í garð.
Ég
Að vera ég,
það er að vera eins og ský
sem er ýmist ljóst
eða dökkt
og breytist svo
í regndropa
sem fellur til jarðar.
Ég
Ský sem er lítið og skrítið
eins og nýfæddur kiðlingur.
Eyra sem hlustar og heyrir
þannig er ég.
Ég hlusta og heyri í fólki.
Anton Freyr Arnarsson, 5. bekk
Túngötu 14 Hvanneyri, 311 Borgarnes
-------
Fótur
Það var eitt sinn fótur
sem gekk fram hjá mér.
Ég fékk sting í hjartað
og hugsaði:
Þessi hlýtur að vera gamall.
Ég vorkenndi þessum
sem átti fótinn,
hann sem er búinn að labba
langar leiðir
með þennan fót
alltaf fyrir neðan sig.
Ég
Ég er eins og ávaxtatré
sem vill gefa öllum ávexti.
Ég er líka eins og sólin sem skín
og kemur öllum í gott skap.
Vor
Vor er í hjarta mínu og þínu
vorið er tími
sem kemur og fer
vor er ást.
Elsa María Vignisdóttir, 5. bekk
Skólaflöt 14 Hvanneyri, 311 Borgarnes
-------
Mamma mín
Augun græn eins og gimsteinar.
Hlý - samt köld.
Þreytt eftir erfiða nótt
en bugast aldrei.
Ég man þá stund,
tár féllu niður
á vanga minn,
augu hennar sáu mig
og brostu.
Ég
Ég er eins og skýin
sem ferðast um
allan heim en
eru alltaf á
réttum stað.
Ég er eins og hús
með gluggum
í myrkasta skammdegi
lýsi ég mig upp.
Vorið
Ég veit að vorið kemur
af því að ég heyrði þröstinn
kalla á mig og segja
að á morgun fari frostið.
Hvað er að vera ég?
Ég er eins og fiðrildi
sem líkist öllum
en er aldrei eins.
Ég er eins og bífluga
en breytist svo í úlfalda með kryppu á baki.
Ég er eins og taska
sem geymir ólíka hluti.
Ég er fótur sem gengur um allt
en slitnar ekki nema eftir 50 ár.
Ég er hreindýr með horn út í allar átti.
Að vera ég er rosalega skemmtilegt
af því að ég get líkt mér við allt!!!
Ég er eins og mappa
sem er alltaf að fá fleiri fræði til sín.
Ég er eins og skál með rúsínum.
Ég er eins og íspinni með súkkulaði utan um.
Björk Lárusdóttir, 5. bekk
Túngötu 20 Hvanneyri, 311 Borgarnes
-------
Andlit mömmu
Augu hennar glansa til mín
munnurinn segir eitthvað við mig
andlitið er rétt fyrir framan mig
fallega andlitið er hjá mér.
Karlotta María Scholl, 4. bekk
Skólaflöt, íbúð 102 Hvanneyri, 311 Borgarnes
-------
Gamla konan
Í borginni er gömul kona,
settist á bekk, með kryppu á bakinu,
sást að hún var fátæk og lítil,
af því að hún hafði klæði yfir höfðinu.
Skuggi var yfir henni.
Hendurnar hennar voru skítugar,
með sorgarrönd undir nöglunum.
Daginn eftir dó gamla konan
og fór til himnaríkis.
Þegar ein kona deyr breytist heimurinn.
Hvað er að vera ég?
Það er að vera góður strákur,
að hjálpa mömmu við baksturinn
og pabba við smíðar.
Að vera Borgfirðingur
og hugsa um hundinn
og spila á píanó.
Þorsteinn Björnsson, 4. bekk
Túngötu 13 Hvanneyri, 311 Borgarnes
-------