Fyrirspurn
Heim
Leita
Stærsta Leturgerð
Miðstærð Leturs
Minnsta Leturgerð

Ljóð unga fólksins 2013

Ásdís Lilija Arnardóttir Hvanneyri.

Nemandi í 5. bekk.

 

Bækur.

 

Textinn streymir áfram

og fellur eins og foss

á blaðsíðum eru myndir

af tröllum og köllum

 

Bækur geta verið

stuttar, líka langar.

 

Bókin kennir

bókin svæfir

og bókin nennir

að bíða eftir mér.

 

 

 

 

 

Edda Heiðrún Backman og

Þórarinn Eldjárn

Úr bókinni vaknaðu, Sölvi

 

Vaknaðu, Sölvi

segir Týra.

Hún vill ráða,

hún vill stýra.

 

Hvað er nú þetta?

hugsar ketta.

Hvað er hann sífelt að sulla og sletta.

 

Látum okkur sjá

nú líst mér betur á:

Nýjan feitan fisk

fæ ég kannski á disk.

 

Stöngin er flott

og fata undir aflann.

Aldeilis gott,

ég ætla að éta

og japla´allan staflann.

 

Hvað er að sjá?

Hvað er atarna?

Þykist hann fá

fiskinn þarna?

 

Komnir allir

kettir í götunni.

En einginn fiskur

úr fötunni.

 

Ég held bara, Sölvi

ég sveimérþá bölvi.

Ég gefst upp-  á vandræðagepli

sem japlar á epli.

Hið sanna kom í ljós:

Sardína úr dós.

 

 

Ljóðin eru samin við myndir eftir Eddu Heiðrúnu Backman. Til styrktar hollvinum Grensársdeildar.

 

 

 

Þorsteinn frá Hamri

Ljóðabókin

Allt kom það nær .

 

 

Árstíðirnar nem ég

í andvara, gróðri

 

en veit þess dæmi

að vorið hafi sprungið út

gegnum síma...

 

Og inn til mín

um opinn glugga á jarðhæð

hafa glettur

sáldrað sömu boðum:

 

Litríkum deplum

sem lýstu upp gráma hugans,

bræddu úr brjósti Þelann

 

á miðjum

hinum mannskæða þorra.

 

 

Piet Hein í þýðingu

Helga Hálfdánarssonar.

 

Staka.

 

Spyrji þitt hjarta

vorið til vegar,

verðurðu skáld,

ef þú ert það þegar.

 

Heimspeki.

 

Um tilgang lífsins

lífið sér

jafn lengi og einskis

spyrjum vér.

 

Úr sjóði minninganna.

 

Sú alfyrsta minning

sem mér hefur geymst

er eitt sem ég mundi

að mér hafði gleymst.

 

 

Gleðileg jól. 

Kveiki lítinn Kertaloga

jólavísa eftir

Kristínu Jónsdóttur

bónda á Hlíð í Lóni.

 

Kveiki lítinn kertaloga.

Kyrrð og friður ríki í nótt.

Upp á himins bláum boga

blikar jólastjarnan hljótt.

 

Ljúfust ykkur lýsi sól.

Lengist óðum dagur.

Egið gleði og gæfu um jól.

Græðist ykkar hagur.

 

 

Gyrðir Elíasson hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár fyrir bóklina

Milli trjánna.

Hér birtast þrjú ljóða hans

 

Haustdagur í skógi

úr bókinni  Tvífundnaland 

 

Litli fuglinn

sem ég sé flögra

milli neðstu greina

aspartrjánna

reyndist vera

músarindill

 

Það brestur

í kvistum

á stígnum

 

við erum þarna

tveir skrítnir fuglar

 

 

 

Úr bókinni Indíánasumar

 

Stúlkubarn á fyrsta ári


Að sitja á eldhúsgólfi,
borða rúsínur af undir-
skál og mæna upp í
rafmagnsljósið sem
er sól þessa dags
Það er lífið!
seinna
breytist
ljósið 


 

 

Herdísarvík 1

 

Svarta fjallið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

Svarta húsið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

En sjórinn

er aldrei

í sama lit

 

 

 

  

 

 

Að hugsa sér

 

Ljóð Lennon

Þýðing Þórarinn Eldjárn

 

Að hugsa himnaríki

og helvíti ekki til

aðeins jörð og himinn

það er auðvelt ef ég

vil

Að hugsa að allir lifðu

og hrærðust hér og

nú.

 

Hugsaðu þér hvergi

nein landamæri lögð

að drepa og deyja

fyrir

né deilt um trúarbrögð

já hugsaðu þér

heiminn

halda grið og frið.

 

Mér er sagt ég sé með óra

en ég er ekki einn um það.

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að griðarstað.

 

Að hugsa sér ef engar

eignir væru til,

græðgi og hungur horfin,

hvergi ranglátt spil.

Að hugsa sér öll gæði heimsins og jarðar deilast

jafnt.

 

Mér er sagt ég sé

með óra

en ég er ekki einn um það

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að einum stað.

 

 

 

 

Mynd

 

Að vakna og

sjá sólina

leika í trjánum

þröst sitja

á grein við gluggann

er ljóð um vorið

 

Snjólaug Guðmundsdóttir

 

 

Jafnvægi

 

Hér er allt eins og á að vera

Ey þar og nes hér

Og vík milli vina

Þrestir í görðum

Sendlingar í fjörum

Æðarfugl í eynni

Allir þurfa að komast af

Og hafa skipt milli sín gæðunum

Sem við menn kunnum ekki lengur

 

Finnur Torfi Hjörleifsson

 

 

 

Styrkir Menningarráðs

Hér eru upplýsingar um nokkur af verkefnunum sem fengu styrk árið 2008

 

Framkvæmdarnefnd Leifssafns í Dölum,  Upphleypt landakort með upplýsingum um víkingatímann, landnám og siglingaleiðir m.a. til Grænlands og Vínlands, sem verður staðsett í Eiríkssafni. Eiríkssafn er nýtt safn sem verið er að setja upp í Búðardal.

Sagnamiðstöð Íslands, Grundarfirði, Alþjóðleg sagnahátíð haldin í Grundafirði á árinu 2008.

Norska húsið, Stykkishólmi. 20. öldin í Norska húsinu og fjölbreytt sýningarhald á árinu, meðal annars á Viðburðarviku. Hér eru samtals fjögur menningartengd og metnaðarfull verkefni. ( fjórir styrkir )                                                                     

Landnámssetur Íslands í Borgarnesi, Eitt merkasta nýsköpunarsetur á landinu. Leiksýning um hetjuna Brák. Einstök upplifun af leiklist og sögu. Saga til næsta bæjar, sagnakeppni í viðburðarviku með sagnamönnum vítt og breitt af landinu sem lýkur á því að kosin verður Sagnaþulur Íslands. ( tveir styrkir )

Grundaskóli, Akranesi, SöngleikirUngur Gamall og söngleikur saminn úr íslenskum fornsögum. Hér fer saman nýsköpun og sagnahefð. frábær stjórnun, samvinna og leikgleði. ( 2.styrkir)

Akranesbær, útiljósmyndasýningbrott fluttra ljósmyndara. Nýsköpun og ræktarsemi við ljósmyndara af Skaganum, en á Akranesi er sérstakur áhugi fyrir ljósmyndun.

Listasetrið Kirkjuhvoli, fjölbreyttar sýningar í eina listhúsi Vesturlands. Einnig verður þar m.a. listsýning af völdum verkum frá listasafni A.S.Í. ( tveir styrkir)

Vinir Hallarinnar, Akranesi( samtals fjögur verkefni) Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs, og áræðni ungra manna til þess að skapa líf í starfsemi Bíóhallarinnar á Akranesi. Verkefni í menningartengdri ferðaþjónustu og á Viðburðarviku.

Dagskrá um Jón Hreggviðsson, Akraneskaupstaður. Verkefni í menningartengdri ferðaþjónustu.

Norræn goðafræði, Snorrastofa Reykholti. Undirbúningur og hönnun sýningar um norræna goðafræði. Hér á að setja upp sýningu sem byggir á því sem fornleifafræðingar hafa fram að færa og aðrir fræðimenn, en treysta ekki einungis á Eddu Snorra og hugarheim hans. Á vegum Snorrastofu fer fram rannsóknarverkefni um norræna goðafræði.

Sumartónleikaröð í Stykkishólmi. Kirkjukór Stykkishólms hefur skipulagt og staðið fyrir því í mörg ár að fá íslenska tónlistarmenn til þess að spila á sumar tónleikum í kirkjunni. Þetta er mjög metnaðarfullt verkefni og gefur tónlistarmönnum okkar tækifæri til þess að spila og syngja fyrir fólks á Snæfellsnesi.

Ungmennafélag Reykdæla. Leikritið Þið munið hann Jörund eftir Jónas Árnason. Leikgerð og leikstjórnun Guðmundur Ingi Þorvaldsson.

Suðræn Sveifla, samstarf milli svæða , Skólahljómsveit Akraness, Skólalúðrasveit Stykkishólms og Trommusveit Snæfellsness. Sameiginlegir tónleikar á Vesturlandi.

Hólar og Dalir myndlistarverkefnivítt og breitt um Dalabyggð. Listamenn munu vinna myndlistarsýningar í samstarfi við ferðamálafélag Dala og Reykhóla og þannig virkja fleiri til þátttöku og draga að gesti og leiða þá um sveitir Dalasýslu.

Þjóðlagasveitin Akranesi. Einstaklega áhugaverður hópur af fiðlurum og söngfólki sem hefur slegið í gegn á Vesturlandi og víðar. Tónleikar meðal annars með Herði Torfassyni.

Víkingafélag í Dalabyggð, námskeið í sagnahefð og víkinga handverki m.a. vattarsaum og bogagerð. Verkefni í menningartengdri ferðaþjónustu.

Ferðafélag Dalamanna. Merkingsögustaða í Dalabyggð, um er að ræða þrjú söguskilti. Útlit skiltanna er unnið af listamönnum og segja þau frá sögulegum atburðum úr héraðinu í máli og myndum.

Bókasafn Akraness, Leirárgarða- og Beitistaðaprent, sýning og ráðstefna. Á síðustu árum átjándu aldar og byrjun nítjándu aldar fór öll prentstarfsemi fram að Leirárgörðum og á Beitistöðum. Vekja athygli á merkum sögustöðum og fágætum prentgripum í eigu safna á svæðinu.

Algjör draumur, Leikklúbbur Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi

Frumsaminn söngleikur, Snæfellsbær. Samstarfsverkefni félagsmiðstöðvar, tónlistarskóla og grunnskóla saminn fyrir 14-16 ár unglinga og gerist í Snæfellsbæ á 9. áratugnum með heimsókn til Bárðar í Snæfellsjökli.

Einleikur Gísla Einarssonar, sagnahefð og kvikmyndagerð.

Hernámið, Ljósmyndasafnið Akranesi, sýning á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit.

All senses. Að styrkja ímynd Vesturlands sem sögusvæðis.  All senses. Nýstárleg kynning fyrir Vesturland og frumleg samþætting sögu, ferðamennsku og samvinnu.

Byggðasafnið Görðum, áhugaverð námskeið um fjölbreytilegt íslenskt handverk.

Merkingar menningarminja sem stuðla að bættum upplýsingum fyrir ferðamenn.

Akranesbær, upplýsingaskilti, merkingar sem vísa til sögu Akraness, menningarminja, náttúru, fjöru og fuglalífi og merkingu á listaverkum á Akranesi.

Landbúnaðarsafn Íslands, Dráttarvéla dagurinn á Hvanneyri, sem þegar er þekkt afþreying í Borgarfirði og víðar.Tröðin, fræðslu og minjastígur, menningartengd ferðaþjónusta á Hvanneyri.

Grunnskólinn í Borgarnesi, sýning á 100 ára skólastarfi, þessi sýning mun tengjast sýningu í Safnahúsi Borgarnes um leikföng, leiki og lífi barna fyrir 100 árum.

Sögusvið bókar, Steinar Berg Ísleifsson. Nýsköpun í ferðamálum á landinu, frumleg og listræn útfærsla .

Skáld á Skaga, Listsýning nemenda Brekkubæjarskóla Akranesi.

Leikfélag Ólafsvíkur, Allt í plati. Fjölskylduleiksýning leikfélags Ólafsvíkur.         

Samhljómur, Alþjóðleg tónlistarhátíð Reykholti, Listviðburður sem hefur fyrir löngu sannað ágæti sitt.Menningartengd og listræn ferðamennska.                             

Árleg alþjóðleg kvikmyndahátíð Grundarfirði og Heimildarmynd í fullri lengd. Dögg Mósesdóttir. Grundarfjörður er að verða kvikmyndabær Vesturlands, áhugavert framtak nýsköpun og menningartengd ferðaþjónusta og mikið frumkvæði Daggar Mósesdóttur kvikmyndakonu í heimabyggð.

Grjótið aftur heim, Uppsetning listaverka á Akranesi, Guttormur Jónsson. Listaverkin hafa verið unnin síðastliðin 15 ár úr grjóti frá Vesturlandi og granít frá Grænlandi. Einstakur listviðburður sem stendur stutt yfir á vormánuðum á Akranesi.

Vínartónleikar á Viðburðarviku, Guðrún Ingimarsdóttirásamt Salon hljómsveit Sigurðar Ingva Snorrasonar í Reykholtskirkju.

Pólsk menningarhátíð, Félag nýrra Íslendinga, nýsköpun og áhugavert frumkvæði til að kynna menningu nýrra Íslendinga.

Eva, fjöltæknisýningólíkra listsviða sem vísa í örlagasögu Evu Hjálmarsdóttur. Sýning verður í Vatnasafni. Tónlist, Þuríður Jónsdóttir. Myndlist, Ólöf Norðdal. Libretto Guðrún Eva Mínervudóttir sem í ár er listamaður Vatnasafns. Söngur er fluttur af Ásgerði Júníusdóttur og leikstjórn, Kristín Jóhannesdóttir

Sögufélag Dalamanna, Minnisvarðar og söguskilti um Stefán frá Hvítárdal, Stein Steinar og Sturlu Þórðarson. Dalaskáldin þrjú.

Málþing um Stein Steinar að Nýp á Skarðsströnd. 100 ár eru frá fæðingu skáldsins og verður haldin hátíðardagskrá í Staðarhólskirkju, og Tjarnarlundi í Saurbæ. Frumflutt tónverk eftir Snorra Sigfús Birgisson við ljóð Steins Steinars.

Borgfirskir utangarðslistamenn í Borgarnesi, Listamenn sem vinna í gler og stefna á sýningu í Vínarborg á komandi vori ásamt fjölda annarra hópa utangarðslistamanna víða að frá Evrópu..       

Listsýning sjö myndlistamannaá Akranesi sem allir starfa við Brekkubæjarskóla. Við skólann hafa á undanförnu starfað margir virtir listamenn enda áberandi listrænt starf nemenda skólans sem einnig munu halda sýningu á Akranesi á verkefnum sínum í ár með styrk frá Menningarráði.

Söngbræður á Vesturlandi á viðburðarviku, konsertar á Akranesi og í Reykholti ásamt kirkjukórum staðarins. Einnig verður sungið í Dölunum og í Strandasýslu á Hólmavík með kvennakórnum Norðurljósum.

Ólafsdalshátíðsumarið 2008. Vinnuheitið Ólafsdalur – sáttmáli manns og náttúru. Ætlað að vekja athygli á Ólafsdal í Dölum sem eins merkasta sögustaðar á Vesturlandi.

Hinir síungu, sönghópursem samanstendur af áhugasömum einstaklingum meðalaldur þeirra er 75 ár. Þeir munu halda tvenna tónleika hið minnsta í Ólafsvík og á Hellissandi ásamt meðleikaranum Valentinu Key        skólastjóra tónlistarskólans í Snæfellsbæ.

 

Prentvæn útgáfa

Menningarráð Vesturlands | Bjarnarbraut 8 | menning@vesturland.is | 433 2313 og 892 5290