Fyrirspurn
Heim
Leita
Stærsta Leturgerð
Miðstærð Leturs
Minnsta Leturgerð

Edda Heiðrún Backman og

Þórarinn Eldjárn

Úr bókinni vaknaðu, Sölvi

 

Vaknaðu, Sölvi

segir Týra.

Hún vill ráða,

hún vill stýra.

 

Hvað er nú þetta?

hugsar ketta.

Hvað er hann sífelt að sulla og sletta.

 

Látum okkur sjá

nú líst mér betur á:

Nýjan feitan fisk

fæ ég kannski á disk.

 

Stöngin er flott

og fata undir aflann.

Aldeilis gott,

ég ætla að éta

og japla´allan staflann.

 

Hvað er að sjá?

Hvað er atarna?

Þykist hann fá

fiskinn þarna?

 

Komnir allir

kettir í götunni.

En einginn fiskur

úr fötunni.

 

Ég held bara, Sölvi

ég sveimérþá bölvi.

Ég gefst upp-  á vandræðagepli

sem japlar á epli.

Hið sanna kom í ljós:

Sardína úr dós.

 

 

Ljóðin eru samin við myndir eftir Eddu Heiðrúnu Backman. Til styrktar hollvinum Grensársdeildar.

 

 

 

Þorsteinn frá Hamri

Ljóðabókin

Allt kom það nær .

 

 

Árstíðirnar nem ég

í andvara, gróðri

 

en veit þess dæmi

að vorið hafi sprungið út

gegnum síma...

 

Og inn til mín

um opinn glugga á jarðhæð

hafa glettur

sáldrað sömu boðum:

 

Litríkum deplum

sem lýstu upp gráma hugans,

bræddu úr brjósti Þelann

 

á miðjum

hinum mannskæða þorra.

 

 

Piet Hein í þýðingu

Helga Hálfdánarssonar.

 

Staka.

 

Spyrji þitt hjarta

vorið til vegar,

verðurðu skáld,

ef þú ert það þegar.

 

Heimspeki.

 

Um tilgang lífsins

lífið sér

jafn lengi og einskis

spyrjum vér.

 

Úr sjóði minninganna.

 

Sú alfyrsta minning

sem mér hefur geymst

er eitt sem ég mundi

að mér hafði gleymst.

 

 

Gleðileg jól. 

Kveiki lítinn Kertaloga

jólavísa eftir

Kristínu Jónsdóttur

bónda á Hlíð í Lóni.

 

Kveiki lítinn kertaloga.

Kyrrð og friður ríki í nótt.

Upp á himins bláum boga

blikar jólastjarnan hljótt.

 

Ljúfust ykkur lýsi sól.

Lengist óðum dagur.

Egið gleði og gæfu um jól.

Græðist ykkar hagur.

 

 

Gyrðir Elíasson hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár fyrir bóklina

Milli trjánna.

Hér birtast þrjú ljóða hans

 

Haustdagur í skógi

úr bókinni  Tvífundnaland 

 

Litli fuglinn

sem ég sé flögra

milli neðstu greina

aspartrjánna

reyndist vera

músarindill

 

Það brestur

í kvistum

á stígnum

 

við erum þarna

tveir skrítnir fuglar

 

 

 

Úr bókinni Indíánasumar

 

Stúlkubarn á fyrsta ári


Að sitja á eldhúsgólfi,
borða rúsínur af undir-
skál og mæna upp í
rafmagnsljósið sem
er sól þessa dags
Það er lífið!
seinna
breytist
ljósið 


 

 

Herdísarvík 1

 

Svarta fjallið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

Svarta húsið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

En sjórinn

er aldrei

í sama lit

 

 

 

  

 

 

Að hugsa sér

 

Ljóð Lennon

Þýðing Þórarinn Eldjárn

 

Að hugsa himnaríki

og helvíti ekki til

aðeins jörð og himinn

það er auðvelt ef ég

vil

Að hugsa að allir lifðu

og hrærðust hér og

nú.

 

Hugsaðu þér hvergi

nein landamæri lögð

að drepa og deyja

fyrir

né deilt um trúarbrögð

já hugsaðu þér

heiminn

halda grið og frið.

 

Mér er sagt ég sé með óra

en ég er ekki einn um það.

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að griðarstað.

 

Að hugsa sér ef engar

eignir væru til,

græðgi og hungur horfin,

hvergi ranglátt spil.

Að hugsa sér öll gæði heimsins og jarðar deilast

jafnt.

 

Mér er sagt ég sé

með óra

en ég er ekki einn um það

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að einum stað.

 

 

 

 

Mynd

 

Að vakna og

sjá sólina

leika í trjánum

þröst sitja

á grein við gluggann

er ljóð um vorið

 

Snjólaug Guðmundsdóttir

 

 

Jafnvægi

 

Hér er allt eins og á að vera

Ey þar og nes hér

Og vík milli vina

Þrestir í görðum

Sendlingar í fjörum

Æðarfugl í eynni

Allir þurfa að komast af

Og hafa skipt milli sín gæðunum

Sem við menn kunnum ekki lengur

 

Finnur Torfi Hjörleifsson

 

 

Úthlutanir Menningarráðs Vesturlands úr menningarsjóði 2009

 

Prentvænt skjal með nánari upplýsingum er hægt ða nálgast neðst á síðunni.

 

 

Nafn Upphæð
Akraneskaupstaður 2.400.000
Landnámssetur Íslands 1.000.000
Skáldastofa um Dalaskáldin 1.000.000
Snorrastofa Reykholti 1.000.000
Stykkishólmsbær 1.000.000
Vesturlandsstofa 800.000
Northenwaves  700.000
Byggðasafnið Görðum 650.000
Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla 600.000
Ljóð í náttúru 590.000
Þjóðlagasveitin  500.000
Poppoli kvikmyndafélag 500.000
Átthagastofa 450.000
Snæfellsbær 450.000
Hollvinasamtök Dalabyggðar 400.000
Samhljómur 400.000
IsNord tónlistarhátíð 400.000
Eyrbyggja Sögumiðstöð 400.000
Skessuhorn 400.000
Steinsnar ehf. 400.000
Viðburðarvika  400.000
Sjóminjasafnið Hellissandi 350.000
Félag nýrra Íslendinga SONI 310.000
Bjarni Þór Bjarnasson 300.000
Tónlistarhátíð í Stykkishólmskirkju 300.000
Einkunnir  Borgarbyggð 300.000
Þjóðhátíð á Akranesi 300.000
Grundafjarðarbær 300.000
Samkomuhúsið Arnarstapa 300.000
Sögukort Vesturlands 300.000
Tónlistarfélag Borgarfjarðar 300.000
Sjávarsafnið á Norðurtanga 300.000
Akraborgin  250.000
Ungmennafélag Reykdæla 250.000
Leikfélag Ólafsvíkur 250.000
Leikfélagið Grímnir 250.000
Leikdeild UMF Skallagríms 250.000
Borgarbyggð 250.000
Leiklistarklúbbur NFFA 250.000
Vinir Hallarinnar 250.000
"Dalir og Hólar" 250.000
Veronica Osterhammer  200.000
Safnahús Borgarfjarðar 200.000
 Ingibjörg og Theódóra 200.000
Hanna Dóra Sturludóttir 200.000
Lúðrasveit Stykkishólms 200.000
Karlakórinn Söngbræður 200.000
Bláskeggsbrúarhátíð 200.000
Listhandverksnámskeið 150.000
Ungmennafélagið Íslendingur 150.000
Ljósmyndasýning á Jörvagleði 150.000
Ljósmyndasýning í Átthagastofu 150.000
Textílsýning 150.000
Grundartangakórinn 100.000
Málþing í Átthagastofu 100.000
Kammerkór Akraness 100.000
Búninga- og kjólasýning 100.000
Silfurrefirnir 100.000
Hinir síungu 100.000
Þorpið Akranesi 100.000
Þorpið Akranesi 100.000
Kvennakórinn Ymur 100.000
Kammerkór Vesturlands 100.000
Freyjukórinn 100.000
Grundarfjörður 100.000
Gleðigjafar 100.000
Bókasafn Akraness og Símenntunarmiðstöð Vesturlands 100.000
Spurningakeppni 100.000
Bandið bak við eyrað 100.000
Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum 100.000
Framfarafélag Snæfellsbæjar 100.000

 

Prentvæn útgáfa með nánari útskýringum (PDF 22KB)

 

Menningarráð Vesturlands | Bjarnarbraut 8 | menning@vesturland.is | 433 2313 og 892 5290