Fyrirspurn
Heim
Leita
Stærsta Leturgerð
Miðstærð Leturs
Minnsta Leturgerð

Edda Heiðrún Backman og

Þórarinn Eldjárn

Úr bókinni vaknaðu, Sölvi

 

Vaknaðu, Sölvi

segir Týra.

Hún vill ráða,

hún vill stýra.

 

Hvað er nú þetta?

hugsar ketta.

Hvað er hann sífelt að sulla og sletta.

 

Látum okkur sjá

nú líst mér betur á:

Nýjan feitan fisk

fæ ég kannski á disk.

 

Stöngin er flott

og fata undir aflann.

Aldeilis gott,

ég ætla að éta

og japla´allan staflann.

 

Hvað er að sjá?

Hvað er atarna?

Þykist hann fá

fiskinn þarna?

 

Komnir allir

kettir í götunni.

En einginn fiskur

úr fötunni.

 

Ég held bara, Sölvi

ég sveimérþá bölvi.

Ég gefst upp-  á vandræðagepli

sem japlar á epli.

Hið sanna kom í ljós:

Sardína úr dós.

 

 

Ljóðin eru samin við myndir eftir Eddu Heiðrúnu Backman. Til styrktar hollvinum Grensársdeildar.

 

 

 

Þorsteinn frá Hamri

Ljóðabókin

Allt kom það nær .

 

 

Árstíðirnar nem ég

í andvara, gróðri

 

en veit þess dæmi

að vorið hafi sprungið út

gegnum síma...

 

Og inn til mín

um opinn glugga á jarðhæð

hafa glettur

sáldrað sömu boðum:

 

Litríkum deplum

sem lýstu upp gráma hugans,

bræddu úr brjósti Þelann

 

á miðjum

hinum mannskæða þorra.

 

 

Piet Hein í þýðingu

Helga Hálfdánarssonar.

 

Staka.

 

Spyrji þitt hjarta

vorið til vegar,

verðurðu skáld,

ef þú ert það þegar.

 

Heimspeki.

 

Um tilgang lífsins

lífið sér

jafn lengi og einskis

spyrjum vér.

 

Úr sjóði minninganna.

 

Sú alfyrsta minning

sem mér hefur geymst

er eitt sem ég mundi

að mér hafði gleymst.

 

 

Gleðileg jól. 

Kveiki lítinn Kertaloga

jólavísa eftir

Kristínu Jónsdóttur

bónda á Hlíð í Lóni.

 

Kveiki lítinn kertaloga.

Kyrrð og friður ríki í nótt.

Upp á himins bláum boga

blikar jólastjarnan hljótt.

 

Ljúfust ykkur lýsi sól.

Lengist óðum dagur.

Egið gleði og gæfu um jól.

Græðist ykkar hagur.

 

 

Gyrðir Elíasson hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár fyrir bóklina

Milli trjánna.

Hér birtast þrjú ljóða hans

 

Haustdagur í skógi

úr bókinni  Tvífundnaland 

 

Litli fuglinn

sem ég sé flögra

milli neðstu greina

aspartrjánna

reyndist vera

músarindill

 

Það brestur

í kvistum

á stígnum

 

við erum þarna

tveir skrítnir fuglar

 

 

 

Úr bókinni Indíánasumar

 

Stúlkubarn á fyrsta ári


Að sitja á eldhúsgólfi,
borða rúsínur af undir-
skál og mæna upp í
rafmagnsljósið sem
er sól þessa dags
Það er lífið!
seinna
breytist
ljósið 


 

 

Herdísarvík 1

 

Svarta fjallið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

Svarta húsið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

En sjórinn

er aldrei

í sama lit

 

 

 

  

 

 

Að hugsa sér

 

Ljóð Lennon

Þýðing Þórarinn Eldjárn

 

Að hugsa himnaríki

og helvíti ekki til

aðeins jörð og himinn

það er auðvelt ef ég

vil

Að hugsa að allir lifðu

og hrærðust hér og

nú.

 

Hugsaðu þér hvergi

nein landamæri lögð

að drepa og deyja

fyrir

né deilt um trúarbrögð

já hugsaðu þér

heiminn

halda grið og frið.

 

Mér er sagt ég sé með óra

en ég er ekki einn um það.

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að griðarstað.

 

Að hugsa sér ef engar

eignir væru til,

græðgi og hungur horfin,

hvergi ranglátt spil.

Að hugsa sér öll gæði heimsins og jarðar deilast

jafnt.

 

Mér er sagt ég sé

með óra

en ég er ekki einn um það

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að einum stað.

 

 

 

 

Mynd

 

Að vakna og

sjá sólina

leika í trjánum

þröst sitja

á grein við gluggann

er ljóð um vorið

 

Snjólaug Guðmundsdóttir

 

 

Jafnvægi

 

Hér er allt eins og á að vera

Ey þar og nes hér

Og vík milli vina

Þrestir í görðum

Sendlingar í fjörum

Æðarfugl í eynni

Allir þurfa að komast af

Og hafa skipt milli sín gæðunum

Sem við menn kunnum ekki lengur

 

Finnur Torfi Hjörleifsson

 

 

Úthlutanir Menningarráðs Vesturlands úr menningarsjóði 2010

 

Prentvænt skjal með nánari upplýsingum er hægt að nálgast neðst á síðunni.

 

 

Umsækjandi Tegund umsókna Úthlutað  
Snorrastofa í Reykholti Menningartengd ferðaþjónusta 1.800.000 Hönnun og uppsetning sýningar um ævi, verk og hýbýli  Snorra Sturlusonar í Reykholti.
Akranesstofa Menningararfur og safnamál 1.500.000 " Veröld sem var" Ísland á árunum 1950-1980. Uppsetning og hönnun sýningar í Byggðasafninu Görðum. Akranesstofa.
Sérverkefni   1.500.000 Sérverkefni á vegum Menningarráð Vesturlands.
Fígúra ehf. Leiklist 1.000.000 Fígúra ehf. Uppsetning á brúðusýningunni "Gilitrutt" í nýju brúðuleikhúsi Brúðuheima í Borgarnesi.
Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla Menningartengd ferðaþjónusta 1.000.000 Byggðasafn Snæfellinga- og Hnappdæla, sýningar í Norska húsinu. Sýning um frú Ásu Wright . Álfar og huldukonur, sýning Ingibjargar Ágústsdóttur. 
Ólafsdalsfélagið Menningararfur og safnamál 750.000 Ólafsdalsfélagið, hönnun og uppsetning sýningar um sögu Ólafsdalsskólans. 130 ára afmæli Ólafsdalsskólans í Gilsfirði, fyrsta búnaðarskóla Íslands stofnaður 1890.
Sigurður Jökulsson Menningartengd ferðaþjónusta 750.000 Eiríkur rauði í útrás, sambland af sagnamennsku og leiksýningu,  unnið út frá sögu Eiríks og Leifs sem flutt hefur verið á Eiríksstöðum í Dölum. Sigurður Jökull.
Íþróttabandalag Akraness Myndlist og ljósmyndir 750.000 Íþróttabandalag Akraness, uppsetning ljósmyndasýningar í íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum og 100 ára saga Íþróttabandalags Akraness í vídeoverki.
Dalabyggð ofl. (sjá samstarfsaðila neðar) Kvikmyndagerð 750.000  Svarti Víkingurinn heimildarmynd. Fjölþjóðlegt verkefni sem ber heitið Geirmundur heljarskinn. Ísland, Noregur og Írland verða í lykilhlutverki. Dalabyggð.
Landnámssetur Íslands ehf Leiklist 750.000 Landnámssetur Íslands, fjölbreytt menningarstarf, tónleikar og leiksýningar. 
Samhljómur ehf / Reykholtshátíð 2009 Tónlist 650.000 Reykholtshátíð alþjóðleg tónlistarhátíð, Karlakór Basil dómkirkjunnar í Moskvu, Christopher strengjakvartettinn og þekktir  íslenskir tónlistarmenneru meðal flytjenda. 
"Krakkar ráða för" - umsjón ILDI ehf.  Menningartengd ferðaþjónusta 600.000 "Krakkar ráða för" Samstarfsverkefni átta ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi um menningartengda ferðaþjónustu fyrir börn.
IsNord tónlistarhátíðin Tónlist 600.000 IsNord tónlistarhátíð sem leggur áherslu á íslenska og norræna tónlist. Hátíðin verður haldin í 6. sinn  11.-13. júní. 
Sigurmon Hartmann Sigurðsson Tónlist 500.000 "Vilta Vestrið"  Tveggja daga tónleikaröð á Akranesi,  með sviðuðu sniði og "Aldrei fór ég suður", Réttir og Airwaves. Weapons og Cosmic Call sjá um skipulagið.
Mínerva kvikmyndagerð c/o Kristinn Pétursson Kvikmyndagerð 500.000 Heimildarmynd um Þjóðlagasveit Tónlistarskóla Akraness. Minerva kvikmyndagerð, Kristinn Pétursson.
Akranesstofa Myndlist og ljósmyndir 500.000 Útiljósmyndasýning  áhugaljósmyndara á Langasandi Akranesi  í samvinnu við Ljósmyndasafn Akraness og Akranesstofu.
Tónlistarfélag Borgarfjarðar Tónlist 500.000 Tónlistarfélag Borgarfjarðar. Fjölbreyttir tónleikar á árinu 2010.
Sigtryggur Karlsson f.h. Skagaleikflokksins Leiklist 500.000 Skagaleikflokkurinn, leiklistarnámskeið, leikritun og uppsetning leikritsins Sex í sveit.
Grunnskólar og Tónlistaskólinn á Akranesi Tónlist 500.000 Ungir gamlir. Sameiginlegt tónlistarverkefni skólanna á Akranesi og tónlistarskóla Akraness undir stjórn Flosa Einarssonar.
Safnahús Borgarfjarðar Menningararfur og safnamál 500.000 Safnahús Borgarfjarðar. Fræðslusýning um fugla í náttúru Íslands, hönnun og uppsetning sýningar unnið í samvinnu við Náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi.
Dögg Mósesdóttir Kvikmyndagerð 500.000 Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Grundarfirði haldin í skammdeginu.  Northen Wave international filmfestival. Áhersla er á stuttmyndir og listrænt gildi myndanna.  
Poppoli kvikmyndafélag Kvikmyndagerð 500.000 Poppoli, Land míns föður. Heimildarmynd um fjórar kynslóðir manna í Dölum , tekin í Búðardal og nágrenni .
Félag nýrra Íslendinga / Society of New Icelanders   470.000 Félag nýrra Íslendinga / Society of New Icelanders og Rauði krossinn á Akranesi.  Þjóðhátíð Vesturlands 2010. International festival in West Iceland 2010.
Penna sf. Myndlist og ljósmyndir 450.000 Penna sf. Þóra Sigurðardóttir, Nýp, Skarðsströnd. Viðburðarflétta á sviði lista og fræða. Samstarfsverkefni við myndlistarmenn, í tengslum við sýninguna verður málþing á Nýp. 
Eyrbyggja Sögumiðstöð Bókmenntir, fræðirit, margmiðlun og ráðstefnur 450.000 Eyrbyggja sögumiðstöð. Hönnun og framsetning á sögu Snæfellsness. Ingi Hans  Jónsson.
Átthagastofa Snæfellsbæjar II Tónlist 400.000 Átthagastofa Snæfellsbæjar, sýning og tónleikar í minningu Maríu Markan.
K. Hulda Guðmundsdóttir Menningartengd ferðaþjónusta 400.000 Menning í skógi- skáldaskógur, skilti með upplýsingum um skáld  og húsin  í sókninni. Um orðsins list og byggingararf - brot úr sögu 20. aldar í fram- Skorradal.
Leir7 ehf Listhönnun 350.000 Leir 7 í Stykkishólmi. Hönnun umbúða markaðsetningar og frumsýningar á  bollum  sem unnir verða úr leir frá Skarðsströnd í Dölum af a.m.k. 4 leirlistarmönnum. 
Byggðasafnið að Görðum, Akranesi Menningararfur og safnamál 350.000 Byggðasafnið að Görðum. Sýning um vesturfara frá Akranesi.
Nemendafélag Menntaskóla Borgarfjarðar Leiklist 350.000 Nemendafélag Menntaskóla Borgarfjarðar. Leiklist tónlist og dans  í fyrsta leikverki  í MB undir stjórn Ásu Hlínar Svavarsdóttur.  
Sonja Karen Marínósdóttir Leiklist 350.000 Söngleikurinn Tónlistarsagan endalausa, uppsetnig og á leikverki  í Grundarfirði samstarf grunnskóla og framhaldsskóla.
Ljósmyndasafn Akraness Menningararfur og safnamál 300.000 Ljósmyndasafn Akraness,  hefur tekið til varðveislu  ljósmyndasöfn þar á meðal ljósmyndir Árna Böðvarssonar.  Vönduð ljósmyndasýning verður sett upp að Görðum á verkum hans.
Sigurður Þórólfsson Menningartengd ferðaþjónusta 300.000 Örnefnaskráning og leiðarlýsing um vestanverða Dalabyggð, í umsjón Sigurðar Þórólfssonar.
Blús- og djassfélag Akraness Tónlist 300.000 Blús- og djassfélag Akraness.  Þriggja daga tónlistarveisla, landslið tónlistarmanna ásamt ungum og efnilegum tónlistamönnum á Akranesi.
Óperukompaníið Tónlist 300.000 Óperukompaníið, Uppsetning á óperunni Leyndarmál Súsönnu eftir Woolf Ferrari sem mun verða sýnd á fleiri stöðum á Vesturlandi.  Hanna Þóra Guðbrandsdóttir.
Dýrfinna Torfadóttir Listhönnun 300.000 Dýrfinna Torfadóttir, sýning á Akranesi,  Umbreyting sjávarfangs.  Ljósmyndiryndir af einstaklingum við fiskvinnslustörf , skart smíðað sérstaklega við hæfi hvers og eins og myndað á ný, skartklætt.
Áhugahópur um Mánudagsmenningu/Kammerkór Akraness Tónlist 300.000 Mánaðarlegir tónleikar sem fara fram í Akraneskirkju eða í safnaðarheimilinu Vinarminni á Akranesi. Í umsjón Kammerkórs Akraness og Sveinns Arnars Sæmundssonar.
Brekkubæjarskóli c/o Arnbjörg Stefánsdóttir Tónlist 300.000 "Tónleikur "  lög og textar eftir Skagamenn,  samstarf Brekkubæjarskóla og Tónlistarskóla Akraness. Sýnt verður í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi.
Lista- og menningarnefnd Snæfellsbæjar Leiklist 250.000 Nýstárlegt leikrit í umsjón Kára Viðarssonar frá Hellisandi. Samstarf Snæfellsbæjar og Grundarfjarðar með unglingum á svæðinu.
Lista-og menningarnefnd Snæfellsbæjar Fræðsla og námsskeið 250.000 Sumarlistasmiðja barna og unglinga í Snæfellsbæ.
Leikfélag Ólafsvíkur Leiklist 250.000 Leikverkið "Með vífið í lúkunum" höfundur Ray Conney í þýðingu Árna Íbsen
Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) Menningartengd ferðaþjónusta 250.000 Haustfagnaður í Dölum. Málþing " ungt fólk í landbúnaði" hagyrðingakvöld, rokktónleikar og ýmislegt annað gert í tengslum við hátíðina.
Þorpið c/o Heiðrún Janusardóttir Fræðsla og námsskeið 250.000 Námskeið í skapandi kvikmyndagerð. Þorpið á Akranesi.
Eiríksstaðanefnd Menningartengd ferðaþjónusta 250.000 Afmælishátíð að Eiríksstöðum dagskrá í anda staðarins ,víkingahópar, örnámskeið, sagnamenn og fleira.
Hollvinasamtök Dalabyggðar Menningartengd ferðaþjónusta 250.000 Hollvinasamtök Dalabyggðar, sögukort í máli og myndum.
Steinsnar ehf. Menningartengd ferðaþjónusta 250.000 Trölla og söguvettvangur í Fossatúni.
Átthagastofa Snæfellsbæjar Menningartengd ferðaþjónusta 250.000 Hanna skilti og myndmál sem segja sögu Axlar-Björns. Átthagastofa
Leikdeild UMF Skallagríms Leiklist 250.000 Leikritið Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. UMF. Skallagrímur
Leiklistarklúbbur Nemendafélags FVA Leiklist 250.000 Fjölbrautarskóli Akraness uppsetning leikverks eftir Einar Viðarsson og Gunnar Sturlu Hervarsson.
Ungmennafélag Reykdæla Leiklist 250.000 Uppsetning á leikverkinu "Allra meina bót" í fullri lengd. UMF Reykdæla.
Kári Viðarsson Leiklist 250.000 Bárðarsaga Snæfellsáss,  einleikur Kára Viðarssonar.
3ernir ehf. Kvikmyndagerð 250.000 Kvikmynd um líf og starf Páls Guðmundssonar listamanns frá Húsafelli.
Félagsmiðstöðin Óðal Borgarnesi Annað 200.000 20 ára afmælishátíð félagsmiðstöðvarinnar Óðals í Borgarnesi.
Menningarmálanefnd Hvalfjarðarsveitar Bókmenntir, fræðirit, margmiðlun og ráðstefnur 200.000 Söfnun frásagna úr Hvalfjarðarsveit.
Frístundamiðstöðin Þorpið. Frístundah. Fjörfiskar Fræðsla og námsskeið 200.000 Félagsmiðstöðin Arnardalur Akranesi fagnar 30 ára afmæli.
Borgarbyggð / Umsjónarnefnd Einkunna fólkvangs Menningartengd ferðaþjónusta 200.000 Fólkvangurinn í Einkunnum er eini fólkvangurinn á Vesturlandi, sótt er um styrk til þess að koma upp góðri merkingu við þjóðveginn sem vísar á fólkvanginn.
Sögufélag Dalamanna Menningartengd ferðaþjónusta 200.000 Sýning sem segir frá gömlu kolanámunum á Skarðsströnd.
Byggðasafnið að Görðum, Akranesi Fræðsla og námsskeið 200.000 Þing og námskeið um eldsmíði á safnasvæðinu á Görðum Akranesi.
Sjóminjasafnið Hellissandi Menningartengd ferðaþjónusta 200.000 Upplýsingabæklingur um það menningarstarf sem Sjóminjasafnið á Hellissandi hefur að geyma.
Vör - Erla Björk Örnólfsdóttir Fræðsla og námsskeið 200.000 Hönnun og prentun bæklings, samstarf Varar sjávarrannsókna og Þjóðgarðsins. Um fjörunytjar og menningu tengda búsetu við sjávarsíðuna.
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull-Guðbjörg Gunnarsd. Fræðsla og námsskeið 200.000 Hönnun og prenntun bæklings samstarf Varar sjávarrannsókna og Þjóðgarðsins. Um fjörunytjar og menningu tengda búsetu við sjávarsíðuna.
Ungmennafélagið Íslendingur Leiklist 200.000 Ungmennafélagið Íslendingur, barna- og unglingaskemmtun þar sem töframaður sýnir listir sínar og leikrit i fullri lengd.
Frístundamiðstöðin Þorpið Blönduð menningardagskrá 200.000 Samstarfsverkefni fatlaðra og ófatlaðra barna frá ólíkum menningarheimum. Þorpið Akranesi.
Hringhorni Fræðsla og námsskeið 200.000 Hringhorni, námskeið í langbogasmíði að hætti víkinga á Akranesi.
María Kristín Óskarsdóttir - keramiker Listhönnun 200.000 Sýning þriggja listamanna sem vinna í leir og textíl. Sýningin mun ferðast um Vesturland og út fyrir landsteinana.
Kammerkór Vesturlands Tónlist 180.000 Kammerkór Vesturlands mun flytja á vordögum m.a. verkið Missa Brevis eftir W. A. Mozart í Reykholtskirkju.
Jón Þór Þórðarson f.h. Rythmasveitar Akraness Tónlist 150.000 Markmið sveitarinnar er að gefa ungu og eldra tónlistarfólki á Akranesi kost á að taka þátt í rythmisku samspili undir handleiðslu og koma síðan fram á tónleikum og hátíðum. Jón Þór Þórðarsson.
Arndís Ásta Gestsdóttir Fræðsla og námsskeið 150.000 Námskeið og sýning utangarðslistamanna í Gallerý Brák. Listamennirnir koma frá Borgarbyggð og Akranesi.
Karlakórinn Söngbræður Tónlist 150.000 Tónleikahald í Borgarfjarðarhéraði og á Akranesi, samstarf og tónleikar í Skagafirði og Austur- Húnavatnssýslu. Tónleikar í Reykjavík. Karlakórinn Söngbræður.
Samkór Mýramanna Tónlist 150.000 Miðsvetrartónleikar í Borgarneskirkju.  Tónleikar í Hólmavíkurkirkju. Samkór Mýramanna
Ólöf Sigríður Davíðsdóttir Listhönnun 100.000 Listsýning Ólafar Davíðsdóttur í Gallerý Brák, Borgarnesi.
Félag nýrra Íslendinga / Society of New Icelanders Tónlist 100.000 Félag nýrra Íslendinga / Society of New Icelanders  heldur tónleika á Vökudögum með sönghópnum Oran More sem syngur m.a.  á gelisku og írsku. 
Rósa Sigrún Jónsdóttir Menningartengd ferðaþjónusta 100.000 Þjóðgarðurinn, Ferðafélag Íslands og listamenn opna sýningu í sal Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls.
Ragnheiður Þorgrímsdóttir /Námshestar Myndlist og ljósmyndir 100.000 Listsýning á verkum Margrétar Aðalheiðar Kristófersdóttur frá Kúludalsá á hestamyndum í húsakynnum Námshesta á Kúludalsá.
Kristján Helgason Bókmenntir, fræðirit, margmiðlun og ráðstefnur 75.000 Fréttamöppurnar " Hvað er að frétta frá Snæfellsbæ".
Grundarfjarðarhöfn Menningartengd ferðaþjónusta 75.000 Móttökuhópur fyrir gesti skemmtiferðaskipa , leikmunir og vettvangsferðir Grundafjarðarbær.
Freyjukórinn Tónlist 75.000 Freyjukórinn, Vortónleikar í Reykholtskirkju.
Hjördís Alexandersdóttir Listhönnun 75.000 Hjördís Alexandersdóttir Hellisandi, listsýning á leirskúlptúr.
Arnheiður Hjörleifsdóttir Menningartengd ferðaþjónusta 50.000 Menningartengd ferðaþjónusta á Bjarteyjarsandi Hvalfjarðarsveit.
Kirkjukór Ólafsvíkur Tónlist 50.000 Tónleikar á sjómannadaginn á netaverkstæði á höfninni í Ólafsvík. Einungis verða flutt sjómannalög. Kirkjukór Ólafsvíkur.
Hanna Jónsdóttir Annað 50.000 Leshringur Hebbanna, starf eldri borgara í Stykkishólmi.
    30.300.000  

 

Prentvæn útgáfa með nánari útskýringum (PDF 22KB)

 

Menningarráð Vesturlands | Bjarnarbraut 8 | menning@vesturland.is | 433 2313 og 892 5290