Ræða Jóns Pálma, formanns Menningarráðs á aðalfundi 5.maí 2010í Görðum á Akranesi.
Ágætir aðalfundargestir.
Árið 2009 var fjórða heila árið sem Menningarráð Vesturlands starfar, en ráðið var skipað í desember 2005 á grundvelli samnings sveitarfélaga á Vesturlandi við þáverandi menntamála- og samgönguráðuneyti.
Menningarráðið hélt 10 formlega stjórnarfundi á árinu 2009 að viðbættum aðalfundi ráðsins. Fundað var víða á starfssvæðinu, en það hefur verið stefna ráðsins að fundunum sé dreift á starfssvæðið. Einnig voru samskipti nefndarmanna og menningarfulltrúa mikil með tölvusamskiptum á milli funda.
Menningarráðið auglýsir árlega eftir styrkjum í lok árs á grundvelli formlegra
úthlutunarreglna sem hlutaðeigandi aðilum hafa verið kynntar með opnum fundum svo og aðgengi á heimasíðu Menningarráðs.
Á starfsárinu 2009 bárust 153 umsóknir um ýmis verkefni og voru heildarbeiðnir um 115 milljónir króna, en ákveðið var að veita styrki að fjárhæð 25,0 milljónir króna og fór úthlutun þess fjár fram í Leifsbúð í Dalabyggð að viðstöddum strykhöfum og annarra góðra gesta.
Það er mikið verk að yfirfara allar umsóknir og úthluta þeim takmörkuðu fjármunum sem ráðið hefur til úthlutunar, og eru þær úthlutanir alls ekki yfir gagnrýni hafnar, en menningarráðið leitast við á hverjum tíma að ná sem mestri sátt um úthlutanir og að hafa úthlutunarreglur eins skýrar og kostur er. Góð ráð í þeim efnum eru að sjálfsögðu vel þegin.
Í lok árs rann út samningur sveitarfélaganna við ráðuneytin og var lögð í það mikil vinna við að fá samninginn endurnýjaðan, sem tókst loks í mars s.l., en þó aðeins til eins árs. Það verður því verkefni nýrrar stjórnar og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi að tryggja nýjan samning nú á haustdögum, samning sem þarf að verða til fleiri ára en eins, þannig að hægt sé að byggja starfssemi ráðsins á traustum grunni þar sem horft verður til framtíðar í stað þess að horfa einungis fáa mánuði fram í tímann eins og verið hefur undanfarin tvö ár.
Við endurnýjun samnings vegna ársins 2009 reyndist erfitt að fá leiðréttingu fjármuna miðað við önnur menningarráð sem mörg hver hafa fengið meiri fjármuni frá ríki miðað við íbúafjölda en þó má einnig halda því fram í ljósi fjárhagsörðugleika sem ríkisvaldið glímir nú við svo og aðrir aðilar í þjóðfélagini, að framlag ríkisins sem var 27 milljónir króna hafi verið harla gott framlag í ljósi aðstæðna.
Til viðbótar fjármunum frá ríkinu leggja sveitarfélögin til skv 5 gr. samningsins 25% árið 2009 vegna úthlutaðra styrkja ásamt því að leggja til helming rekstrarútgjalda ráðsins árið 2009.
Um s.l. áramót urðu mannabreytingar í stjórn. Helga Ágústsdóttir sem setið hefur í stjórninni frá upphafi hætti störfum og í hennar stað kom Halla Steinólfsdóttir sem fulltrúi Dalabyggðar, en hún hefur verið varamaður í stjórn. Menningarráð færir Helgu bestu þakkir fyrir mikið og gott starf í þágu menningarmála á Vesturlandi og óskar henni velfarnaðar í störfum sínum á nýjum vetvangi.
Menningaráðið skipa nú eftirfarandi aðilar:
· Jón Pálmi Pálsson, formaður, tilnefndur af sveitarfélögunum sunnan
Skarðsheiðar.
· Guðrún A. Gunnarsdóttir tilnefnd af sveitarfélögunum á Snæfellsnesi.
· Eiríkur Ólafsson tilnefndur af sveitarfélögunum í Borgarfirði norðan
Skarðsheiðar.
· Halla Steinólfsdóttir tilnefnd af Dalabyggð.
· Kristjana Hermannsdóttir tilnefnd af SSV.
Menningarfulltrúi er Elísabet Haraldsdóttir.
Menningarráðið hefur gefið út veglega ársskýrslu sem liggur fyrir hér á fundinum og vísa ég til hennar um frekari störf ráðsins og mun menningarfulltrúi gera nánar grein fyrir henni svo og ársreikningi menningarráðs fyrir árið 2009 síðar á fundinum. Að lokum vil ég þakka samstarfið á árinu sem nú er lokið, bæði meðnefndarfólki mínu, og menningarfulltrúa og lít ég björtum augum á framhald mála hér á Vesturlandi hvað menningarmálin áhræir, því sjá má að tilurð menningarráðsins og þeirra fjármuna sem veittir eru á þess vegum til ýmissa verkefna, skila samfélaginu miklu til aukinna lífsgæða fyrir íbúa Vesturlands og því viljum við halda áfram.
Í ljósi þess að þessi aðalfundur er sá síðasti á kjörtímabili ráðsins leyfi ég mér fyrir hönd Menningarráðs Vesturlands að færa aðildarsveitarfélögum þeim sem standa að ráðinu, kærar þakkir fyrir myndarleg framlög og góðan stuðning þeirra til árlegs reksturs, jafnframt þakkir til stjórnar og framkvæmdastjóra SSV vegna þeirrar vinnu sem þar hefur verið lögð fram til stuðnings ráðsins og vinnu við samningagerð við ráðuneytin.
Takk fyrir.
Jón Pálmi Pálsson, formaður.