Fyrirspurn
Heim
Leita
Stærsta Leturgerð
Miðstærð Leturs
Minnsta Leturgerð

Edda Heiðrún Backman og

Þórarinn Eldjárn

Úr bókinni vaknaðu, Sölvi

 

Vaknaðu, Sölvi

segir Týra.

Hún vill ráða,

hún vill stýra.

 

Hvað er nú þetta?

hugsar ketta.

Hvað er hann sífelt að sulla og sletta.

 

Látum okkur sjá

nú líst mér betur á:

Nýjan feitan fisk

fæ ég kannski á disk.

 

Stöngin er flott

og fata undir aflann.

Aldeilis gott,

ég ætla að éta

og japla´allan staflann.

 

Hvað er að sjá?

Hvað er atarna?

Þykist hann fá

fiskinn þarna?

 

Komnir allir

kettir í götunni.

En einginn fiskur

úr fötunni.

 

Ég held bara, Sölvi

ég sveimérþá bölvi.

Ég gefst upp-  á vandræðagepli

sem japlar á epli.

Hið sanna kom í ljós:

Sardína úr dós.

 

 

Ljóðin eru samin við myndir eftir Eddu Heiðrúnu Backman. Til styrktar hollvinum Grensársdeildar.

 

 

 

Þorsteinn frá Hamri

Ljóðabókin

Allt kom það nær .

 

 

Árstíðirnar nem ég

í andvara, gróðri

 

en veit þess dæmi

að vorið hafi sprungið út

gegnum síma...

 

Og inn til mín

um opinn glugga á jarðhæð

hafa glettur

sáldrað sömu boðum:

 

Litríkum deplum

sem lýstu upp gráma hugans,

bræddu úr brjósti Þelann

 

á miðjum

hinum mannskæða þorra.

 

 

Piet Hein í þýðingu

Helga Hálfdánarssonar.

 

Staka.

 

Spyrji þitt hjarta

vorið til vegar,

verðurðu skáld,

ef þú ert það þegar.

 

Heimspeki.

 

Um tilgang lífsins

lífið sér

jafn lengi og einskis

spyrjum vér.

 

Úr sjóði minninganna.

 

Sú alfyrsta minning

sem mér hefur geymst

er eitt sem ég mundi

að mér hafði gleymst.

 

 

Gleðileg jól. 

Kveiki lítinn Kertaloga

jólavísa eftir

Kristínu Jónsdóttur

bónda á Hlíð í Lóni.

 

Kveiki lítinn kertaloga.

Kyrrð og friður ríki í nótt.

Upp á himins bláum boga

blikar jólastjarnan hljótt.

 

Ljúfust ykkur lýsi sól.

Lengist óðum dagur.

Egið gleði og gæfu um jól.

Græðist ykkar hagur.

 

 

Gyrðir Elíasson hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár fyrir bóklina

Milli trjánna.

Hér birtast þrjú ljóða hans

 

Haustdagur í skógi

úr bókinni  Tvífundnaland 

 

Litli fuglinn

sem ég sé flögra

milli neðstu greina

aspartrjánna

reyndist vera

músarindill

 

Það brestur

í kvistum

á stígnum

 

við erum þarna

tveir skrítnir fuglar

 

 

 

Úr bókinni Indíánasumar

 

Stúlkubarn á fyrsta ári


Að sitja á eldhúsgólfi,
borða rúsínur af undir-
skál og mæna upp í
rafmagnsljósið sem
er sól þessa dags
Það er lífið!
seinna
breytist
ljósið 


 

 

Herdísarvík 1

 

Svarta fjallið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

Svarta húsið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

En sjórinn

er aldrei

í sama lit

 

 

 

  

 

 

Að hugsa sér

 

Ljóð Lennon

Þýðing Þórarinn Eldjárn

 

Að hugsa himnaríki

og helvíti ekki til

aðeins jörð og himinn

það er auðvelt ef ég

vil

Að hugsa að allir lifðu

og hrærðust hér og

nú.

 

Hugsaðu þér hvergi

nein landamæri lögð

að drepa og deyja

fyrir

né deilt um trúarbrögð

já hugsaðu þér

heiminn

halda grið og frið.

 

Mér er sagt ég sé með óra

en ég er ekki einn um það.

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að griðarstað.

 

Að hugsa sér ef engar

eignir væru til,

græðgi og hungur horfin,

hvergi ranglátt spil.

Að hugsa sér öll gæði heimsins og jarðar deilast

jafnt.

 

Mér er sagt ég sé

með óra

en ég er ekki einn um það

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að einum stað.

 

 

 

 

Mynd

 

Að vakna og

sjá sólina

leika í trjánum

þröst sitja

á grein við gluggann

er ljóð um vorið

 

Snjólaug Guðmundsdóttir

 

 

Jafnvægi

 

Hér er allt eins og á að vera

Ey þar og nes hér

Og vík milli vina

Þrestir í görðum

Sendlingar í fjörum

Æðarfugl í eynni

Allir þurfa að komast af

Og hafa skipt milli sín gæðunum

Sem við menn kunnum ekki lengur

 

Finnur Torfi Hjörleifsson

 

 

Úthlutanir Menningarráðs Vesturlands úr menningarsjóði 2011

Prentvænt skjal með nánari upplýsingum er hægt að nálgast neðst á síðunni.

 

Heiti umsóknar Úthlutað
Brúðuheimar í Borgarnesi. Bernd Ogrodnik og Hildur M. Jónsdóttir.  Gamli maðurinn og hafið er  brúðuleikhús fyrir fullorðna leikhúsgesti. En sýningin verður einnig í boði fyrir eldri bekki grunn- og framhaldsskóla. Þórhallur Sigurðsson leikstýrir sýningunni. 1.250.000
Menningarráð sérverkefni  1.200.000
Landnámssetur Íslands,  Systrasýningar Töfrar heiðninnar fyrir börn og Töfrar heiðninnar fyrir fullorðna.  Höfundur Þór Túliníus. Leikstjóri Peter Engkvist. 1.000.000
 Auður Hafsteinsdóttir, Reykholtshátíð er virt tónlistarhátíð í alþjóðlegu samhengi og laðar að sér  íslenska og erlenda ferðamenn ár hvert, gesti sem líta á Reykholtshátíðina  sem einn áhugaverðasta viðburð í íslensku tónlistarlífi.  1.000.000
Ása Hlín Svavarsdóttir/ Draumurinn, W. Shakespere. Gamanleikur.  Unnið verður með  fjögur listform. Leiklist, dans, tónlist og myndlist er stór þáttur í uppsetningunni.  1.000.000
Jónína Erna Arnardóttir. IsNord er tónlistarhátíð sem leggur áherslu á íslenska og norræna tónlist. Tónleikar fara fram í Hjálmakletti, Stefánshelli og Borgarneskirkju.  Hátíðin verður haldin í júní. 800.000
Stykkishólmur, sett verður upp varanleg sýning um eldvirkni á Snæfellsnesi í Eldfjallasafninu, Stykkishólmi.  750.000
Dögg Mósesdóttir, Northern Wave, árviss kvikmyndahátíð,  sem sýnir stuttmyndir og tónlistarmyndbönd í  Grundarfirði . Á hátíðina hafa borist myndir frá um 50 löndum og hún hefur verið öflug kynning fyrir bæjarfélagið og svæðið allt. 750.000
Grundaskóli Akranesi, frumsaminn unglingasöngleikur saminn af Flosa Einarssyni, Gunnari Sturlu Hervarssyni og Einari Viðarssyni. Sýning verður í Bíóhöllinni Akranesi. 750.000
Þjóðlagasveit Akraness.  Stjórnandi Skúli Ragnar Skúlasson. Hljóðfæraleikur söngur, talkór og leiklist. Flutt í Tónlistrskóla Akraness og víðar. 750.000
"Ungir- gamlir" Flosi Einarsson. Tónlistarhátíð Brekkubæjarskóla, Grundaskóla og Tónlistarskólans.  Þekktum atvinnutónlistarmönnum og tónlistarmönnun frá  Akranesi boðið að taka þátt í tónleikunum  með nemendum.  750.000
3ernir ehf. Heimildarmynd um Pál Guðmundsson listamann frá  Húsafelli .  Myndin sýnir listsköpun hans og tónlist m.a.  við steinhörpuna og samstarf hans við aðra listamenn, rithöfunda og tónlistarmenn. 700.000
Ólafsdalsfélagið í Gilsfirði , Að efla lifandi fræðslu utandyra og kynna uppbygginguna í Ólafsdal og víðar. 600.000
Helena Guttormsdóttir, Listasmiðja náttúrunnar. Býður upp á námskeið sem byggjast m.a.  á skapandi upplifun í náttúrunni .  Samstarf  Ásu Hlínar, Ásu Berglindar, Helenu, Hlínar og Sesselíu . 500.000
Fossatún, Steinar Berg. Ljóðagöngustígur í Fossatúni, Borgarbyggð. 500.000
Nótan. Uppskeruhátíð tónlistarskóla Vesturlands,  Vestfjarða og Húnaþingi vestra haldið í Stykkishólmskirkju. En lokatónleikarnir verða í Langholtskirkju, þar verða sameiginlegir tónleikar efnilegurstu tónlistarnema landsins. 480.000
Akranesstofa," Veröld sem var" framhald frá fyrra ári. Sýning um Ísland á árunum 1950-1980. Sýningin verður sett upp á Görðum safnasvæði Akraness 450.000
Félag nýrra Íslendinga. 5. Þjóðahátíð á Vesturlandi.  Á síðasta ári var kynnt  tónlist, dans, búningar  og matarhefð frá 26 löndum á svæðinu.  Nýir Íslendingar koma af öllu Vesturlandi en hátíðin er haldin  í íþróttahöllinni á Akranesi. 450.000
Stykkishólmskirkja, Árleg sumartónleikaröð. 400.000
ILDI ehf. / f.h. Verkefnisins Saga og Jökull á Vesturlandi, fjölskilduratleikur  um Vesturland. Leikurinn mun byggja á menningu, sögu og náttúru svæðisins . Framhald af Ævintýri á Vesturlandi  menningartengdur fjölskylduferðamennska.  Sigurborg Kr. Hannesdóttir. 400.000
Kári Viðarsson leikari og handritshöfundur, og Víkingur Kristjánsson leikstjóri og handritshöfundur.  Ég er brjálaður  leikrit um Axlar Björn  sem frumflutt verður á Hellissandi og víðar. Hér verður tilfinningin reiði túlkuð.  400.000
Tónlistarfélag Borgarfjarðar, árlegt tónleikahald víðsvegar um Borgarfjörð 400.000
Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla Í Norska húsinu. Sýning um æðarrækt í máli og myndum. Fræðamenn, æðarræktendur og listamenn standa að sýningunni.   400.000
Ása Katrín Bjarnadóttir. VILLTA VESTRIÐ tónlistarhátíð á Akranesi  með svipuðu sniði og Aldrei fór ég suður á Ísafirði. Hér verður grasrót tónlistarmenningar á Akranesi og tækifæri  fyrir tónlistarfólk á Vesturlandi til að koma fram á flottri hátíð. 400.000
Ása Ólafsdóttir. Listgallerí í Lækjarkoti. Sumarsýning 2011 400.000
Nemendafélag Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranes, frumsamið leikritleikrit 350.000
Nemendafélag Menntaskóla Borgarfjarðar - leikrit byggt á tónlist  Dark Side of the Moon eftir Pink Floyd.  Frumsamið af leikstjóranum Bjarti Guðmundssyni  350.000
Eyrbyggja - Sögumiðstöð, Vinnusmiðja og sagnanámskeið sem nota má við móttöku og upplifun í ferðaþjónustu við móttöku ferðamanna. Menningartengd ferðaþjónusta 300.000
Lista- og menningarn. Snæfellsbæjar, Hlutir með sögu, stuttmyndir gerðar í Fsn. Verkefnin verða sett upp víðsvegar og mun tengja byggðalögin á Snæfellsnesi um verkefnið. Í samstarfi við  Berglind Axelsdóttur og Fjölbrautarskólann . 300.000
Sögufélag Dalamanna, Kolanámurnar á Tindum .  Menningartengd ferðaþjónusta. 300.000
Sigurborg Kr. Hannesdóttir, Sögur af sigrum. Safnað verður sögum af raunverulegri kreppu sem eldra fólk upplifði á Vesturlandi. Efninu verður miðlað á sagnavökum t.d. Í framhaldsskólum og fyrir almenning á svæðinu.   300.000
Sigvaldi Arasson, Áhugafólk um samgöngur á Faxaflóa á síðustu öld. Líkön af m/s Laxfossi og m/s Akraborg.  300.000
Blús og Djassfélag Akraness tveggja kvölda tónleikar. 300.000
Örnefnanefnd Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum - Þorsteinn Þorsteinsson & Ragnheiður Ásmundsdóttir 300.000
Grundarfjarðarhöfn. Móttökuhópur skemmtiferðaskipa 270.000
Leikfélag , Ólafsvíkur . Uppsetning á leikverki  Á svið eftir Rick Abbot 250.000
Anna Leif Elídóttir, Listasmiðja fyrir ungt fólk á Akranesi 250.000
Ungmennafélag Reykdæla, leikuppfærsla Með vífið í lúkunum eftir Dario Fo. 250.000
Leikklúbbur Grundarfjarðar uppsetning á Pilti og stúlku eftir Jón Thoroddsen. 250.000
Lista- og menningarnefnd Snæfellsbæjar, barnamenning hátíð 250.000
Kínósmiðja,  listrænt og tilraunakennt námskeið í kvikmyndun fyrir byrjendur, í samvinnu við Northern Wave kvikmyndahátíðina. 250.000
Ungmennahúsið Hvíta húsið. Listsýning unga fólksins Akranesi. 250.000
Leikfélagið Grímnir, leikritið  Kardimommubærinn  250.000
Máni Björgvinsson,  leikfélagið sunnan Skarðsheiðar 250.000
Karlakórinn Söngbræður, Tónleikahald á Vesturlandi og víðar.  Með kórnum í Borgarneskirkju  verður einleikur Birkis Þórissonar ungs píanóleikara úr Borgarnesi..  Kórfélagar eru víða af  Vesturlandi, Dalabyggð og Strandasýslu. 250.000
K. Hulda Guðmundsdóttir Skorradal . Menning í skógi. Menningartengd ferðaþjónusta 250.000
Leikfélagið Skagaleikflokkurinn/ Leikverk í fullri lengd 250.000
Tónlistarhátíð í Dölum, Tónleikar sem tengja saman  Dalabyggð Reykhólum og Strandabyggð og lýkur  verkefninu á Jörfagleði. 250.000
Kjarnakonur í Borgarnesi.  Skósýning í Mjólkursamlaginu í Borgarnesi 250.000
Listasetrið Kirkjuhvoli, Jóhanna Jónsdóttir. Ljósmyndasýning af sjómönnum og sjávarútvegi á Akranesi á síðustu öld. Sýning verður opnuð á hátíð hafsins  Akranesi. 230.000
Svavar  Jónatansson, Landslagsljósmyndun af Snæfellsnesi út um hliðarrúðu vöruflutningabifreiðar . Uppsetning ljósmynda og hreyfimyndasýningar í samstarfi við Snæfellsnesjökulsþjóðgarð. Sýning í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. 200.000
Stefán Ingvar Guðmundsson, ljósmyndasýning í Snæfellsbæ, áfar, vættir á Snæfellsnesi . 200.000
Kór Akraneskirkju, kórútsetningar og konsertar. 200.000
Arnheiður Hjörleifsdóttir, líf og störf til sveita , myndband. 200.000
Erpsstaðir, kynningarefni íslenska kýrin í máli og myndum, menningartengd ferðaþjónusta 200.000
Sjávarsafnið. Önnun og uppsetning á fræðslu og upplýsingaspjöldum í safninu.  200.000
 Sjóminjasafnið í sjóminjagarðinum í Hellissandi.  Skúli Alexandersson  upplýsinga- og göngustígakort 200.000
Byggðasafnið Görðum, Akranesi. Ljósmyndasýning 200.000
Leikfélagið Grímnir, Kvöldhún og Karíus og Baktus. 175.000
Aðalsteinn Jósepsson , Tónleikar á góðri stund í Grundarfirði. 150.000
Kirkj. Saurbæjarpr. Tónverk við ljóð Hallgríms Péturssonar  150.000
Kirkjukór Saurbæjarprestakalls.  150.000
Stúlkurnar, kvennatríó  með Björg Bjarnadóttur, Dalliliju Sæmundsdóttur og Jónínu Björg Magnúsdóttur tónleikar , þær munu halda tónleika á Írskum  dögum á Akranesi. 100.000
Leikfélagið Grímnir, tónleikar með lögum úr söngleikjum. 100.000
Freyjukórinn í Borgarfirði, fjölbreyttir tónleikar  og sameiginlegir tónleikar með norskum karlakór í Reykholti. 100.000
Félag nýrra Íslendinga. Tónlist Óran Mor ( the great melody of life )  mun halda tónleika á keltneskri tónlist á írskum dögum á  Akranesi  100.000
Byggðasafnið Görðum, Akranesi. Harmonikkumót á hátíð hafsins. Sýndar verða harmonikkur og tónleikar verða í samvinnu við félag harmonikkuunnenda á Vesturlandi og Tónlistarskólann á Akranesi. 100.000
Vorhátíð og jólatónleikar Samkórs Mýramanna. 100.000
Átthagastofa í Snæfellsbæ. Fiskur og fegurð sýning  Dýrfinnu Trofadóttur á skartgripum þar sem hún notar m.a. fiskiroð í skartgripi. Ljósmyndir af fiskverkafólki með skartgripina. Sýningin kemur frá Akranesi. 80.000
Hátíðarhöld í tilefni af 100 ára afmæli Ungmennafélagsins Íslendings. 75.000
 Hátíðarhöld í tilefni af 100 ára afmæli  Ungmennafélagsins Dagrenningar í Lundarreykjardal   75.000
Samtals 26.335.000

 

Prentvæn útgáfa

 

Menningarráð Vesturlands | Bjarnarbraut 8 | menning@vesturland.is | 433 2313 og 892 5290