Fyrirspurn
Heim
Leita
Stærsta Leturgerð
Miðstærð Leturs
Minnsta Leturgerð

Ljóð unga fólksins 2013

Ásdís Lilija Arnardóttir Hvanneyri.

Nemandi í 5. bekk.

 

Bækur.

 

Textinn streymir áfram

og fellur eins og foss

á blaðsíðum eru myndir

af tröllum og köllum

 

Bækur geta verið

stuttar, líka langar.

 

Bókin kennir

bókin svæfir

og bókin nennir

að bíða eftir mér.

 

 

 

 

 

Edda Heiðrún Backman og

Þórarinn Eldjárn

Úr bókinni vaknaðu, Sölvi

 

Vaknaðu, Sölvi

segir Týra.

Hún vill ráða,

hún vill stýra.

 

Hvað er nú þetta?

hugsar ketta.

Hvað er hann sífelt að sulla og sletta.

 

Látum okkur sjá

nú líst mér betur á:

Nýjan feitan fisk

fæ ég kannski á disk.

 

Stöngin er flott

og fata undir aflann.

Aldeilis gott,

ég ætla að éta

og japla´allan staflann.

 

Hvað er að sjá?

Hvað er atarna?

Þykist hann fá

fiskinn þarna?

 

Komnir allir

kettir í götunni.

En einginn fiskur

úr fötunni.

 

Ég held bara, Sölvi

ég sveimérþá bölvi.

Ég gefst upp-  á vandræðagepli

sem japlar á epli.

Hið sanna kom í ljós:

Sardína úr dós.

 

 

Ljóðin eru samin við myndir eftir Eddu Heiðrúnu Backman. Til styrktar hollvinum Grensársdeildar.

 

 

 

Þorsteinn frá Hamri

Ljóðabókin

Allt kom það nær .

 

 

Árstíðirnar nem ég

í andvara, gróðri

 

en veit þess dæmi

að vorið hafi sprungið út

gegnum síma...

 

Og inn til mín

um opinn glugga á jarðhæð

hafa glettur

sáldrað sömu boðum:

 

Litríkum deplum

sem lýstu upp gráma hugans,

bræddu úr brjósti Þelann

 

á miðjum

hinum mannskæða þorra.

 

 

Piet Hein í þýðingu

Helga Hálfdánarssonar.

 

Staka.

 

Spyrji þitt hjarta

vorið til vegar,

verðurðu skáld,

ef þú ert það þegar.

 

Heimspeki.

 

Um tilgang lífsins

lífið sér

jafn lengi og einskis

spyrjum vér.

 

Úr sjóði minninganna.

 

Sú alfyrsta minning

sem mér hefur geymst

er eitt sem ég mundi

að mér hafði gleymst.

 

 

Gleðileg jól. 

Kveiki lítinn Kertaloga

jólavísa eftir

Kristínu Jónsdóttur

bónda á Hlíð í Lóni.

 

Kveiki lítinn kertaloga.

Kyrrð og friður ríki í nótt.

Upp á himins bláum boga

blikar jólastjarnan hljótt.

 

Ljúfust ykkur lýsi sól.

Lengist óðum dagur.

Egið gleði og gæfu um jól.

Græðist ykkar hagur.

 

 

Gyrðir Elíasson hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár fyrir bóklina

Milli trjánna.

Hér birtast þrjú ljóða hans

 

Haustdagur í skógi

úr bókinni  Tvífundnaland 

 

Litli fuglinn

sem ég sé flögra

milli neðstu greina

aspartrjánna

reyndist vera

músarindill

 

Það brestur

í kvistum

á stígnum

 

við erum þarna

tveir skrítnir fuglar

 

 

 

Úr bókinni Indíánasumar

 

Stúlkubarn á fyrsta ári


Að sitja á eldhúsgólfi,
borða rúsínur af undir-
skál og mæna upp í
rafmagnsljósið sem
er sól þessa dags
Það er lífið!
seinna
breytist
ljósið 


 

 

Herdísarvík 1

 

Svarta fjallið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

Svarta húsið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

En sjórinn

er aldrei

í sama lit

 

 

 

  

 

 

Að hugsa sér

 

Ljóð Lennon

Þýðing Þórarinn Eldjárn

 

Að hugsa himnaríki

og helvíti ekki til

aðeins jörð og himinn

það er auðvelt ef ég

vil

Að hugsa að allir lifðu

og hrærðust hér og

nú.

 

Hugsaðu þér hvergi

nein landamæri lögð

að drepa og deyja

fyrir

né deilt um trúarbrögð

já hugsaðu þér

heiminn

halda grið og frið.

 

Mér er sagt ég sé með óra

en ég er ekki einn um það.

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að griðarstað.

 

Að hugsa sér ef engar

eignir væru til,

græðgi og hungur horfin,

hvergi ranglátt spil.

Að hugsa sér öll gæði heimsins og jarðar deilast

jafnt.

 

Mér er sagt ég sé

með óra

en ég er ekki einn um það

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að einum stað.

 

 

 

 

Mynd

 

Að vakna og

sjá sólina

leika í trjánum

þröst sitja

á grein við gluggann

er ljóð um vorið

 

Snjólaug Guðmundsdóttir

 

 

Jafnvægi

 

Hér er allt eins og á að vera

Ey þar og nes hér

Og vík milli vina

Þrestir í görðum

Sendlingar í fjörum

Æðarfugl í eynni

Allir þurfa að komast af

Og hafa skipt milli sín gæðunum

Sem við menn kunnum ekki lengur

 

Finnur Torfi Hjörleifsson

 

 

Ávarp formanns við úthlutun styrkja úr Menningarsjóði Vesturlands 2011

 

Prentvæn útgáfa (PDF 365kb)

 

 

 

Þingmenn Vesturlands, sveitarstjórnarmenn, styrkhafar og aðrir góðir gestir.


 
Fyrir hönd Menningarráðs Vesturlands býð ég ykkur hjartanlega velkomin til þessarar  athafnar vegna úthlutunar styrkja úr Menningarsjóði Vesturlands  fyrir árið 2011.


 

Ég vil í upphafi þessa ávarps míns lýsa ánægju minni með að nú liggi fyrir vilji ríkisins um endurnýjun samninga við menningarráðin og í þetta sinn til þriggja ára.  Samningurinn mun innan tíðar verða undirritaður milli ríkisvaldsins og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.    Ánægjulegt er að aðilar hafa náð samkomulagi um endurnýjun samningsins, en það er eindregin mín skoðun að það fjármagn sem samningurinn gerir kleift að veita til einstakra menningarverkefna hér á Vestulandi hafi verulega þýðingu,  menningarlífinu til framdráttar.

 

 
Þetta er í sjötta sinn sem menningarráð Vesturlands úthlutar fjármunum,  að þessu sinni í glæsilegum húsakosti Menntaskólans í Borgarbyggð.


 
Menningarráð Vesturlands var stofnað í árslok 2005 á grundvelli samnings á milli sveitarfélaganna á Vesturlandi og menntamála- og samgöngu-ráðuneytis sem hefur gert okkur kleyft að styrkja myndarlega ýmis verkefni sem einstaklingar, félög og félagasamtök hafa sótt um til ráðsins. 

 
Framlög ríkissjóði til ráðsins eru 23,4 millj. á árinu 2011 sem er 2,6 milljón króna lækkun frá árinu 2010.  Sveitarfélögin á Vesturlandi munu  leggja til framlög til ráðsins, samtals um 10,5 millj. króna, sem er óbreytt framlag frá árinu áður og veldur því að hægt verður að úthluta sambærilegum fjárupphæðum á árinu 2011 og gert var á árinu 2010 þrátt fyrir áðurnefnda lækkun frá ríkissjóði.

 

Úthlutun á árinu 2011 verður í heild sinni um 26,6 milljónir króna, sem er ánægjulegt í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu.  Til gamans má geta þess að uppreiknað til dagsins í dag eru styrkveitingar Menningarráðs Vesturlands orðnar 160 milljónir króna á þessum 6 árum og það munar nú um minna en það, hefði ég haldið.

 
Umsóknir í sjóðinn í ár voru 138 talsins og alls var sótt um 92 miljónir og til úthlutunar koma liðlega 26,6 milljónir eins og áður segir.  Umsóknum hefur fjölgað lítillega á milli ára og er það gleðilegt út af fyrir sig, sér í lagi í ljósi þess að aðstæðurnar í þjóðfélaginu skapa þeim sem sækja um styrki erfitt fyrir að fjármagna sinn hluta verkefnanna. 

 
Sem fyrr vekur það að sjálfsögðu mikla ánægju meðal okkar ráðsmanna að sjá hversu gróskumikið og metnaðarfullt starf það er sem umsækjendur vinna varðandi verkefnin sín.  Mörg þeirra verkefna sem menningarráðið hefur styrkt undanfarin ár hafa vakið mikla athygli, verið vel sótt og eru vel og fagmannlega unnin.   Þessi verkefni auðga mannlíf og draga fram svo margt jákvætt í umhverfi sínu.   Allt þetta sannfærir okkur enn frekar um það hversu gríðarlega mikilvægur samningurinn við ráðuneytin er okkur Vestlendingum og að við séum á réttri leið með það fyrirkomulag sem unnið er eftir, þótt auðvitað megi alltaf bæta reglur og fyrirkomulag.
 
Margar góðar umsóknir bárust að þessu sinni og eru þær um margt mjög metnaðarfullar, margbreytilegar og spanna vítt svið hugtaksins menning, má þar nefna t.d. kórverk, fjölmenningu, kvikmyndahátíð,  tónleika ýmis konar,  leikrit og er þá aðeins lítið upptalið, en þó er ekki hægt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að nauðsynlegt er fyrir umsækjendur að vanda umsóknir sínar, bæði hvað varðar frágang umsóknar og ekki síður  að leggja metnað í verkefnin.

  
Góðir gestir.  Ég vona að við getum átt saman góða stund hér í dag og glaðst yfir blómlegu og fjölbreyttu menningarári á Vesturlandi.
 
Hér á eftir mun Elísabet Haraldsdóttir menningarfulltrúi stýra samkomunni og mun hún afhenda styrkhöfum framlög sín með aðstoð fulltrúa iðnaðarráðuneytisins Helgu Haraldsdóttur.

 

En áður en lengra er haldið vil ég kynna listafólk úr Borgarðbyggð.  Þau kynna sjálf sitt atriði  og ég bið stjórnendur að taka við.

 

Jón Pálmi Pálsson, formaður Menningarráðs Vesturlands.

 

Menningarráð Vesturlands | Bjarnarbraut 8 | menning@vesturland.is | 433 2313 og 892 5290