Fyrirspurn
Heim
Leita
Stærsta Leturgerð
Miðstærð Leturs
Minnsta Leturgerð

Ljóð unga fólksins 2013

Ásdís Lilija Arnardóttir Hvanneyri.

Nemandi í 5. bekk.

 

Bækur.

 

Textinn streymir áfram

og fellur eins og foss

á blaðsíðum eru myndir

af tröllum og köllum

 

Bækur geta verið

stuttar, líka langar.

 

Bókin kennir

bókin svæfir

og bókin nennir

að bíða eftir mér.

 

 

 

 

 

Edda Heiðrún Backman og

Þórarinn Eldjárn

Úr bókinni vaknaðu, Sölvi

 

Vaknaðu, Sölvi

segir Týra.

Hún vill ráða,

hún vill stýra.

 

Hvað er nú þetta?

hugsar ketta.

Hvað er hann sífelt að sulla og sletta.

 

Látum okkur sjá

nú líst mér betur á:

Nýjan feitan fisk

fæ ég kannski á disk.

 

Stöngin er flott

og fata undir aflann.

Aldeilis gott,

ég ætla að éta

og japla´allan staflann.

 

Hvað er að sjá?

Hvað er atarna?

Þykist hann fá

fiskinn þarna?

 

Komnir allir

kettir í götunni.

En einginn fiskur

úr fötunni.

 

Ég held bara, Sölvi

ég sveimérþá bölvi.

Ég gefst upp-  á vandræðagepli

sem japlar á epli.

Hið sanna kom í ljós:

Sardína úr dós.

 

 

Ljóðin eru samin við myndir eftir Eddu Heiðrúnu Backman. Til styrktar hollvinum Grensársdeildar.

 

 

 

Þorsteinn frá Hamri

Ljóðabókin

Allt kom það nær .

 

 

Árstíðirnar nem ég

í andvara, gróðri

 

en veit þess dæmi

að vorið hafi sprungið út

gegnum síma...

 

Og inn til mín

um opinn glugga á jarðhæð

hafa glettur

sáldrað sömu boðum:

 

Litríkum deplum

sem lýstu upp gráma hugans,

bræddu úr brjósti Þelann

 

á miðjum

hinum mannskæða þorra.

 

 

Piet Hein í þýðingu

Helga Hálfdánarssonar.

 

Staka.

 

Spyrji þitt hjarta

vorið til vegar,

verðurðu skáld,

ef þú ert það þegar.

 

Heimspeki.

 

Um tilgang lífsins

lífið sér

jafn lengi og einskis

spyrjum vér.

 

Úr sjóði minninganna.

 

Sú alfyrsta minning

sem mér hefur geymst

er eitt sem ég mundi

að mér hafði gleymst.

 

 

Gleðileg jól. 

Kveiki lítinn Kertaloga

jólavísa eftir

Kristínu Jónsdóttur

bónda á Hlíð í Lóni.

 

Kveiki lítinn kertaloga.

Kyrrð og friður ríki í nótt.

Upp á himins bláum boga

blikar jólastjarnan hljótt.

 

Ljúfust ykkur lýsi sól.

Lengist óðum dagur.

Egið gleði og gæfu um jól.

Græðist ykkar hagur.

 

 

Gyrðir Elíasson hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár fyrir bóklina

Milli trjánna.

Hér birtast þrjú ljóða hans

 

Haustdagur í skógi

úr bókinni  Tvífundnaland 

 

Litli fuglinn

sem ég sé flögra

milli neðstu greina

aspartrjánna

reyndist vera

músarindill

 

Það brestur

í kvistum

á stígnum

 

við erum þarna

tveir skrítnir fuglar

 

 

 

Úr bókinni Indíánasumar

 

Stúlkubarn á fyrsta ári


Að sitja á eldhúsgólfi,
borða rúsínur af undir-
skál og mæna upp í
rafmagnsljósið sem
er sól þessa dags
Það er lífið!
seinna
breytist
ljósið 


 

 

Herdísarvík 1

 

Svarta fjallið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

Svarta húsið

jafn dökkt

í sól og þoku

 

En sjórinn

er aldrei

í sama lit

 

 

 

  

 

 

Að hugsa sér

 

Ljóð Lennon

Þýðing Þórarinn Eldjárn

 

Að hugsa himnaríki

og helvíti ekki til

aðeins jörð og himinn

það er auðvelt ef ég

vil

Að hugsa að allir lifðu

og hrærðust hér og

nú.

 

Hugsaðu þér hvergi

nein landamæri lögð

að drepa og deyja

fyrir

né deilt um trúarbrögð

já hugsaðu þér

heiminn

halda grið og frið.

 

Mér er sagt ég sé með óra

en ég er ekki einn um það.

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að griðarstað.

 

Að hugsa sér ef engar

eignir væru til,

græðgi og hungur horfin,

hvergi ranglátt spil.

Að hugsa sér öll gæði heimsins og jarðar deilast

jafnt.

 

Mér er sagt ég sé

með óra

en ég er ekki einn um það

Já, komdu með, við

höldum hópinn

gerum heiminn að einum stað.

 

 

 

 

Mynd

 

Að vakna og

sjá sólina

leika í trjánum

þröst sitja

á grein við gluggann

er ljóð um vorið

 

Snjólaug Guðmundsdóttir

 

 

Jafnvægi

 

Hér er allt eins og á að vera

Ey þar og nes hér

Og vík milli vina

Þrestir í görðum

Sendlingar í fjörum

Æðarfugl í eynni

Allir þurfa að komast af

Og hafa skipt milli sín gæðunum

Sem við menn kunnum ekki lengur

 

Finnur Torfi Hjörleifsson

 

 

 

Prentvæn útgáfa er neðst í skjalinu.

 

 

               Úthlutanir Menningaráðs Vesturlands úr menningarsjóði 2012

Úthlutað
Tónstef ehf. / Reykholtshátíð 1.000.000
Reykholtshátíð er eftirsóknarverður vettvangur fyrir innlenda og alþjóðlega tónlistarmenn og ekki síður tónlistarunnendur sem njóta tónleikanna.  
Northern Wave     1.000.000
Alþjóðleg kvikmyndahátíð Northen Wave  í Grundarfirði, sýnir stuttmyndir og tónlistarmyndbönd.  Fiskiveisla,tónleikar,fyrirlestrar, námskeið, barnasýningar og fl.
Snorrastofa     1.000.000
Snorrastofa í Reykholti fær styrk til að standa straum af námskeiðum, fyrirlestrum og viðburðum í Snorrastofu. 
Markaðsstofa Vesturlands     1.000.000
 Á slóðir Guðríðar Þorbjarnardóttur, þróun pílagrímsferða m.a. tenging milli Snæfellsness, Eiríksstaða, Dalabygðar og Grænlands, Edda Lyberth Julianehåb
Landbúnaðarsafn Íslands      800.000
Fyrsti áfangi í  varanlegri sýningu í  Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri.
Klipp ehf.     750.000
Heimildarmynd um ævi og störf listamansins Steinþórs Sigurðssonar og órjúfanleg tengsl hans við heimabæinn Stykkishólm.
IsNord tónlistarhátíðin     750.000
Á IsNord tónlistarhátíðinni eru dregnar fram perlur frá íslenskum tónskáldum í bland við það besta frá Norðurlöndunum. Tónlistarfólk m.a. Frá Vesturlandi.
Þorkell Þorkelsson     750.000
Skrásetur í ljósmyndum allt frá hugmynd til frumsýningar, brúðuleikhúsverkið Gamli maðurinn og hafið sem er sýning í Brúðuheimum í Borgarnesi. 
Kór Stykkishólmskirkju     750.000
Árleg sumartónleikaröð í Stykkishólmskirkju og annað listrænt starf.
Landnámssetur Íslands     750.000
Landnámssetur: sýningar, sagnahefð og bókmenntir, með það að markmiði að auka fjölbreytileika í menningartengdri ferðaþjónustu.  
Brúðuheimar ehf.     750.000
 Alladín og andinn í lampanum. Austrænir menningarheimar kynntir frá stríðshrjáðu  landsvæði þar sem menning hefur blómstrað í yfir 3000 ár.
Frystiklefinn, Rifi Snæfellsbæ     700.000
Trúðleikur er fjölskyldusýning þar sem tækni trúðleiksins, sprell og fjör eru í aðalhlutverki í nýja leikhúsinu Frystiklefanum á Rifi í Snæfellsbæ.
Þjóðlagasveit Tónlistarskóla Akraness 700.000
 Í nýju verki Þjóðlagasveitarinnar mun stjórnandinn vinna með "spjallhorn" þar sem hann ræðir við áhorfendur og lítur yfir farinn veg Þjóðlagasveitarinnar. 
Grundaskóli, Brekkubæjarskóli og Tónlistarskóli Akraness 700.000
Ungir-Gamlir. Samstarf eldir tónlistarmanna og ungs fólks á Akranesi, samstarf sem stuðlar að aukinni tónlistariðkun ungmenna á Akranesi.
Blús og Djassfélag Akraness     500.000
Blús og Djasstónlistarhátíð, þar sem fram kemur landsþekkt tónlistarfólk, ásamt tónlistarfólki á Akranesi.
Tón-Vest      500.000
NÓTAN . Á hátíðinni fá nemendur af öllu landinu tækifæri til að sýna sig og sjá aðra. Hátíðin eykuri víðsýni nemenda og auðugar tónlistarlífi á Vesturlandi. 
Heiðrún Hámundardóttir     500.000
Leiksýning, unnið verður með sögur og söngva tengda Akranesi og Hvalfjarðarsveit með nemendum skóla á þessum svæðum og Tónlistarskólanum.
Brúðuheimar ehf.     400.000
Alþjóðleg brúðuleikhúshátíð í neðribænum í  Borgarnesi 29. mars til 1. apríl 2012. Aðaláherslan í ár er á brúðuleikhús frá Englandi. 
Freyjukórinn í Borgarfirði     400.000
"Syngjandi konur á Vesturlandi" söngbúðir og námskeið  með Kristjönu Stefánsdóttur djass söngkonu í fararbroddi. Allar konur hvattar til þátttöku.
Stórsveit Snæfellsness     400.000
Tónleika á a.m.k. fjórum stöðum á Vesturlandi. Verkefnið er eitt stærsta samstarfsverkefni á sviði tónlistar sem ráðist hefur verið í á Snæfellsnesi .
FRÆ kvikmyndir ehf.     400.000
Markmiðið er að gera áhrifamikla mynd, samfélagsspegil sem hefur jákvæð áhrif á samfélagið. Söguvettvangur er á Vesturlandi .
Æringur     400.000
Markmið Ærings er að vekja athygli á og efla listsköpun ungs fólks á  myndlist á landsbyggðinni. Einnig að virkja þau til sjálfstæðrar atvinnusköpunar í listum.
Markaðsstofa Vesturlands     400.000
Auðlindahátíð á vesturlandi til þess að lengja ferðatímann sem endar með málþingi um matarmenningu úr héraði.
Út og vestur ehf     400.000
Þjónusta við pilagríma er e.t.v. elsta og mikilvægasta form ferðaþjónustu.  Hér er stigið fyrsta skrefið í að byggja upp pílagrímaleið á Íslandi. 
Eyrbyggja - Sögumiðstöð     400.000
Efnt verður til árlegrar Eyrbyggjuhátíðar, viðburðum verður dreift um svæðið. Með samstarfi áhugafólks og sveitarfélaga verður sögunni miðlað um svæðið.
Tónlistarfélag Borgarfjarðar     350.000
Markmið Tónlistarfélagsins er að gefa heimamönnum tækifæri til þess að hlusta á fjölbreytta tónlist í flutningi fyrsta flokks listamanna.
Penna sf.     350.000
Dalir og hólar 2012, myndlistarsýning. Náttúra og menning í Dalabyggð og Reykhólasveit . Listamennirnir koma víða að bæði frá Íslandi og Norðurlöndum.  
Átthagastofa Snæfellsbæjar     300.000
Fjölbreytt menningartengt starf í Pakkhúsi og Átthagastofu Snæfellsbæjar.
List og handverk sf. Akranesi 300.000
Samsýning List- og handverksfélags Akraness. Þema sýningarinnar er þjóðsaga.  Unnið verður t.d.  með ull, vatnsliti, leir, postulín, roð, tré, gler og olíuliti.
Ungmennafélag Reykdæla     300.000
Frumsamin og frumflutt revía í fullri lengd,bráðfyndin og skemmtileg. Samin af Bjartmari Hannessyni frá Norðurreykjum.  
Byggðasafnið Görðum, Akranesi 300.000
Byggðasafnið ásamt samstarfsaðilum stendur að viðburðumum tengdum búsetu, mannlífi og atvinnu á Akranesi frá upphafi byggðar á svæðinu fram til okkar daga.
Kolbrún S. Kjarval     300.000
Leirlistarsýning á Akranesi. Flutningur listakonunnar frá höfuðborginni út á landsbyggðina hefur orðið henni mikill innblástur sem hún við kynna fyrir öðrum
Leikfélagið Grímnir, Stykkishólmi 300.000
Tónlistaruppsetning á sögu hljómsveita í Stykkishólmi frá 1950 fram til dagsins í dag. Margir af upphaflegum meðlimum munu stíga á stokk á sýningunni.
Ólafsdalsfélagið     300.000
Ólafsdalur í Gilsfirði, viðburðir og ráðstefna á Ólafsdalshátíð12.-13. ágúst.
Landbúnaðarháskóli Íslands     250.000
Minnisvarði um Gunnar Bjarnason á Hvanneyri. Gunnar Bjarnason mótaði og ritaði sögu íslenska hestins á 20. öld.
Umf. Dagrenning      250.000
Uppfærsla á Sölku Völku eftir Halldór Kiljan Laxness í leikgerð Stefáns Baldurssonar og Þorsteins Gunnarssonar og leikstjórn Jakobs S. Jónssonar.
Leikdeild Skallagríms     250.000
Uppfærsla á leikritinu Skugga-Sveini eftir Mattías Jochumsson í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar.
Listasetrið Kirkjuhvoll     250.000
Sýning með verkum Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara. Sýningin spannar fimm síðustu æviár hanns frá 1977 - 1982. Öll listaverkin eru úr viði.
Listasetrið Kirkjuhvoll     250.000
Fjórar ljósmyndasýningar í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands sem vöktu mikla athygli. Ólíkar sýningar fyrir breiðan hóp fólks sem verða settar upp í Kirkjuhvoli. 
Eigið fé ehf.     250.000
Markmið að vekja athygli á og fræða fólk um sérstöðu íslensku sauðkindarinnar og um sambúð hennar og íslensku þjóðarinnar í gegn um aldirnar.
Akranesstofa     250.000
Nýtt leikrit um Jón Hreggviðsson í leikgerð Bjarna Jónssonar.  Leikritið fjallar um sögu hans og ferðir um Ísland, Niðurlönd, Þýskaland og Dannmörku.
Leiklistarklúbbur Nemendafélags FVA 250.000
Sett verður upp leikritið Blóðbræður í Bíóhöllinni á Akranesi. 
Leikfélag Ólafsvíkur     250.000
Flutt verður leikverkið Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson 
Ragnheiður Þóra Grímsdóttir     200.000
Sagnaþula með öldruðum. Hjúkrunar- og dvalarheimili aldraðra á Vesturlandi heimsótt og sagðar sögur eins og gert var í baðstofum Íslands áður fyrr.
Stykkishólmsbær     200.000
Ætlunin er að safna saman og sýna myndlistarverk fólks sem tengist Stykkishólmi á einhvern hátt og kynna verk þeirra fyrir Stykkihólmsbúum og gestum.
Félag nýrra Íslendinga     200.000
Einstaklingar í félagi nýrra Íslendinga  kenna ungu fólki írska og keltneska söngva. Tónleikar á Írskum dögum með írskri og keltneskri tónlist.
Skólahljómsveit Akraness     200.000
Blásaradeild tónlistarskólans á Akranesi mun halda tónleika á tónlist sem tengist Akranesi. Til dæmis eftir Teódór Einarsson, Dumbó og Steina  og Tíbrá.
Helgi Daníelsson, Akranes 200.000
Ljósmyndasýning með fréttamyndum sem tengjast atburðum á Akranesi upp úr miðri síðustu öld. 
Fiskasafn á Norðurtanga, Ólafsvík 175.000
Lífríki Breiðafjarðar í máli og  myndum sem  fylgja eftir þeirri upplifun að sjá fiskana í safninu. 
Byggðasafnið Görðum, Akranesi 150.000
Sýningin Endurfundir er fengin frá Þjóðminjasafni Íslands. Sýningin sýnir þá hluti er varða fornleifarannsóknir í Reykholti.
Bókasafn Akraness     150.000
 Marín G. Hrafnsdóttir bókmenntafræðingur og langömmubarn skáldkonunnar Guðrúnar frá Lundi, stýrir dagskrá og segir frá lífi og list ömmu sinnar. Málþing.
Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum. 150.000
Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum hefur frá árinu 2010 unnið að söfnun örnefna.Takmarkmið er að skrá allt örnefnasafn FAB inn á  kortagrunn LÍ.
Danshópurinn Sporið     150.000
Sýningarferð um Snæfellsnes og Dali þar sem íslenskir þjóðdansar verða kynntir í samstarfi við félög eldri borgara og heilbrigðisstofnanir.
Byggðasafnið Görðum, Akranes 150.000
Safnasvæðið Akranesi og félag ísleskra eldsmiða verða með fræðsluverkefni um eldsmíði dagana 1.-3.júní 2012. 
Akranesstofa     150.000
List án landamæra. Verkefnið er hvatning til aukinnar virkni, það brúar bil milli manna og leggur lóð á vogarskálar jafnréttis .
Birna Kristín Lárusdóttir     150.000
Staðarfellsstelpurnar: Hvað stóð ömmum okkar og mömmum til boða að læra? Fjölþætt sýning og forvitnileg í Dölum. 
Gallerí Gersemi, Borgarnes     150.000
Uppsetning fimm sýninga á sýningarvegg gallerísins. Lögð er áhersla á að fá  listamenn  frá vesturlandi og víðar að til sýningarhalds. 
Guðrún E. Jóhannsdóttir     150.000
Samkomuhúsið Röðull er  í endurbyggingu og þar verða markskonar viðburðir þar sem sagnahefð og önnur einstök menning Skarðsstrendinga fær notið sín. 
Grundarfjarðarbær     150.000
Samstarfsverkefni. Menningardagskrá Grundarfjarðarbæjar og vinabæjarins  Paimpol  í Frakklandi á Rökkurdögum.
Karlakórinn Söngbræður     150.000
Tónleikahald Karlakórsins Söngbræðra í Borgarfirði og nærhéruðum auk tónleika á Suðurnesjum, í Vestmannaeyjum og Færeyjum.
Baldur Orri Rafnsson     150.000
Hátíð í bæ 2012. Tónlistarfólk af öllu Snæfellsnesi flytur jólalög í aðdraganda jóla.
Valkyrjur ehf  Lopi & band     150.000
Óhefðbundið sýningarform með lifandi prjónagraffi sem teygir þræði sína út í umhverfið. Workshop á norrænni prjónaráðstefnu í Borgarnesi 5.-11. ágúst 2012
Hildur Halldórsdóttir     140.000
Brother Grass stefnir á að halda tónleika fyrirog með börnum í Borgarnesi. Hljómsveitin spilar suðurríkjatónlist.  
Hjúkrunarheimilið Fellsenda     100.000
Vorfagnaður á Fellsenda. listaverk sem íbúar Fellsenda hafa gert auk annarra listamanna af svæðinu verða sýnd. Tónlistarflutningur, gamanmál og veitingar.
Bjarni Þór Bjarnason     100.000
Listsýning á Akranesi með teikningum sem gerðar hafa verið fyrir blöð og bækur.
Átthagatofa Snæfellsbæjar     100.000
Félag Nýrra Íslendinga heldur listsýningu og tónleika í Átthagastofa og vill með því kynna eigin menningu og menningarstarf. 
Hallvarður Ásgeirsson     100.000
Portretttónleikar tónskálds er tilraunakennd nútímatónlist og er m.a. spilað á Dórófón nýtt íslenskt hljóðfæri eftir Halldór Úlfarsson. Tónleikar á Vesturlandi .
Kammerkór Akraness     100.000
Flutningur á Hallgrímspassíu saminni af Sigurði Sævarssyni árið 2007. Hann hefur útsett verkefnið fyrir kór, orgel og slagverk, í stað hljómsveitar.  
Anna Leif Elídóttir     100.000
Masterklass námskeið þar sem myndlistarmenn frá Vesturlandi mála saman í frjálsu umhverfi í sveitinni og sýna afraksturinn í fjárhúsbyggingum í Hvalfirði. 
Elín Kristinsdóttir -Stúdíó Stykkishólmur 100.000
Tónlistarsmiðjur i Stykkishólmi, sönglög um heimabyggðina.
Steingerður Jóhannsdóttir     100.000
Varðveisla sögu Hvítahússins (Íshússins) í Krossavík og sögu Gísla Stefánssonar,útvegsbónda og samtíðarmanna hans um aldamótin 1900.
Jóhanna L. Jónsdóttir     75.000
Málverkasýning, þar árstíðirnar á Akranesi eru fangaðar sýning í Safnaskálanum.
Vitinn - félag áhugaljósmyndara Akranes     75.000
 Sýning félags áhugamannaljósmyndara á Akranesi á Vökudögum 2012. 
Félagsmiðstöðin Afdrep     75.000
Tvennir tónleikar fyrir unglinga í Snæfellsbæ.
Leikskólinn Vallarsel     75.000
 Á dagskránni er  söngur, hljóðfæraleikur og dans barna.  Vökudagar.
Ungmennahúsið Hvíta húsið     75.000
Ungmenning 2012 er vettvangur fyrir ungt fólk á Vesturlandi til þess að koma list sinni á framfæri. Í ár verður áhersla lögð á sjónlistir.
Kór Akraneskirkju     75.000
 Skólaljóðin í tali og tónum, tónleikar í tilefni af endurútgáfu skólaljóðanna.
Kór Menntaskóla Borgarfjarðar 75.000
Tónleikaröð í maí 2012. Með kórnum leikur hljómsveitin Melankólía en kórin flytur sígild íslensk lög,verk úr klassískri rokksögu og dægurtónlist líðandi stundar.
Penna sf 75.000
Kynning á ransóknum á sögu Breiðafjarðar undir forystu Sverris Jakobssonar. Þetta er hluti af fyrirlestraröð sem Penna stendur fyrir að Nýp á Skarðsströnd.
Elsa Kristín Sigurðardóttir 75.000
Rokktónleikar með hörðustu mönnum landsins á hráasta tónleikastað landsins. Tónleikar  í Hnúksnesi í byrjun júní.
Elín Kristinsdóttir - Stúdíó Stykkishólmur 75.000
Grunnnámskeið í hljóðupptökum og hljóðvinnslu í Stúdíó Stykkishólmi.
Gleðigjafar kór eldriborgara í Borgarfirði 75.000
Kórinn hefur um árabil tekið þátt í kóramóti í Reykholti í byrjun desember, auk þess að syngja við ýmis tækifæri í Borgarbyggð.
Elsa Kristín Sigurðardóttir 63.000
Etienne De France tók upp hluta af mynd sinni Tales of Sea Cow við Breiðafjörð. Sýning á myndinni verður í maí í Hnúksnesi en þar verða einnig sýndir leikmunir og búningar.  Þetta verður fyrsti atburðurinn í Hnúsknesi.
Sérverkefni Menningarráðs Vesturlands 1.500.000
Ráðstefnur, fundir og fleira.
Samtals 27.603.000

 

Prentvæn útgáfa er hér.

Menningarráð Vesturlands | Bjarnarbraut 8 | menning@vesturland.is | 433 2313 og 892 5290